26. júní 2025

Þjónusturof verður á Uglu yfir helgina

Vegna flutnings vélasalar Háskóla Íslands verður hluti tölvuþjónustu Háskólans á Bifröst óaðgengilegur tímabundið helgina 27. - 29. júní.  þetta mun hafa áhrif á: 

  • Uglu 
  • Greiðslukerfi, þar með talið greiðslu skráningargjalda. 

Niðritími verður frá föstudegi 27. júní kl. 12:00 og til sunnudags 29. júní kl. 23:00. Gert er ráð fyrir að Uglan verði aftur komin í gagnið í síðasta lagi að morgni mánudagsins 30. júní, þó líklegt sé að hún verði aðgengileg mun fyrr. 

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum skilninginn.