Sumarstemning í vöfflukaffi Háskólans á Bifröst
Starfsfólk Háskólans á Bifröst saman í húsnæði skólans í dag til að fagna komu sumarsins. Boðið var upp á hefðbundið vöfflukaffi þar sem starfsfólk átti saman góða stund og gæddi sér á veitingum. Við þetta tilefni flutti rektor starfsmönnum sumarkveðju og flutti ljóðið Fræ í forsti sefur eftir Sigurbjörn Einarsson. Í máli rektors kom fram þakklæti fyrir vel unnin störf á liðnum vetri og óskir um farsælt sumar. Að ávarpi loknu afhenti rektor starfsmönnum sumargjafir skólans.

Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta