Styrkir úr Safnasjóði og Nýsköpunarsjóði námsmanna
Rannsóknasetur skapandi greina og Háskólinn á Bifröst hlutu eins árs styrk úr aðalúthlutun Safnasjóðs 2026, fyrir verkefnið Söfn á Íslandi. Úthlutun fór fram fimmtudaginn 16. apríl í Myndasal Þjóðminjasafnsins.
Verkefnið miðar að því að nýta gögn úr árlegum skýrslum viðurkenndra safna til Safnasjóðs til að veita nýja og rannsóknamiðaða innsýn í starfsemi safna á Íslandi. Gagnasafnið er gríðarlega mikilvæg heimild og inniheldur ítarlegar upplýsingar um t.d. fjármál, gesti, starfsfólk, aðgengi og safnkost viðurkenndra safna. Gögnin gefa því möguleika á að varpa ljósi á hlutverk safna í samfélagi og menningu þjóðarinnar.
Auk sérfræðinga RSSG koma Njörður Sigurjónsson og Bergsveinn Þórsson frá Háskólanum á Bifröst að verkefninu. Njörður er doktor í menningarstefnu og menningarstjórnun og Bergsveinn doktor í safnafræðum en þeir eru með mikla rannsóknareynslu og sérþekkingu á sviði menningarstefnu og safnarannsókna.
Styrkurinn er veittur samkvæmt ákvörðun menningar- og viðskiptaráðherra á grundvelli tillagna safnaráðs.
Styrkur úr Nýsköpunarsjóði námsmanna til að skoða safnagesti
Rannsóknarteymið hlaut einnig styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna 2026 til að vinna að verkefninu Að mæla safnastarf: gestatölur og gagnasöfnun. Um er að ræða greiningu á gestatölum viðurkenndra safna á Íslandi, með sérstakri áherslu á ferðamenn sem gesti. Verkefnið byggir á blandaðri aðferð: tölfræði um gesti úr árlegum skýrslum viðurkenndra safna og eigindlegri gagnasöfnun í formi viðtala við forsvarsfólk safna, þar sem spurt verður út í talningu og flokkun gesta.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta