Stór hópur skiptinema við Háskólann á Bifröst 31. ágúst 2015

Stór hópur skiptinema við Háskólann á Bifröst

Fjöldi skiptinema stundar nú nám við Háskólann á Bifröst en þessa haustönnina eru þeir 23 talsins frá 14 löndum. Flestir koma frá Þýskalandi, Singapore, Tékklandi, Japan, Hollandi og Ungverjalandi. Skiptinemarnir setja svip sinn á samfélagið með nærveru sinni og hópurinn í ár er bæði fljótur að aðlagast aðstæðum og að kynnast íslenskum samnemendum sínum.

Móttökukvöldverðurinn var haldinn laugardaginn 22.september sl. þar sem skiptinemarnir fengu tækifæri til að kynnast sínum „skiptinema-buddies“, en það eru íslenskir nemendur sem eru áhugasamir um að kynnast og veita skipinemunum leiðsögn um lífið á Bifröst og íslenska menningu. Nemendur Háskólans á Bifröst eiga hrós skilið fyrir hlýjar móttökur og þann áhuga sem þau sýna bæði nemendunum sjálfum og framandi menningu þeirra.

Laugardaginn 5.september næstkomandi mun hópurinn fara í dagsferð um Snæfellsnesið þar sem þau fara í fuglaskoðun og sjóstangaveiði, ásamt þvi að skoða helstu náttúruperlur svæðisins undir leiðsögn alþjóðafulltrúa Háskólans á Bifröst.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta