Sterk samfélagskennd og jákvæð atvinnuþróun einkenna Vesturbyggð
Sterk samfélagskennd, jákvæð þróun atvinnulífs og stolt af náttúru og heimabyggð eru meðal helstu niðurstaðna nýrrar rannsóknar á byggðabrag í Vesturbyggð. Rannsóknin leiðir jafnframt í ljós áskoranir sem tengjast samgöngum, jafnræði milli byggðakjarna og upplifun íbúa af áhrifum sínum á samfélagið.
Þetta kemur fram í rannsókninni Byggðabragur í Vesturbyggð – Ímynd nýsameinaðs sveitarfélags, sem unnin var af Rannsóknarsetri í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst fyrir Vesturbyggð og Vestfjarðastofu. Rannsóknin fór fram undir stjórn dr. Grétu Bergrúnar Jóhannesdóttur, sérfræðings í byggðarannsóknum. Meðhöfundur er Bjarki Þór Grönfeldt sem kom að mótun rannsóknarinnar og sá um tölfræðilega úrvinnslu.
Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á sjálfsmynd íbúa, styrkleika samfélagsins og þær áskoranir sem fylgja uppbyggingu nýsameinaðs sveitarfélags. Rannsóknin byggðist á spurningakönnun, rýnihópum í fjórum byggðakjörnum, vinnustofu með ungmennum, gagnaskimun og vinnustofu með starfsfólki sveitarfélagsins.
Ánægja með búsetu en áskoranir til staðar
Niðurstöðurnar sýna að íbúar eru almennt ánægðir með búsetu í Vesturbyggð. Meðalánægja með búsetu mældist 5,36 stig á sjö punkta kvarða. Félagsleg tengsl, nálægð við náttúruna og samheldni samfélagsins skipta íbúa miklu máli.
Á sama tíma benda niðurstöðurnar til þess að íbúar upplifi ójafnræði milli byggðakjarna, hafi takmarkaða trú á sameiginlegan samtakamátt og séu verulega óánægðir með vegakerfið. Einnig kom fram kynjamunur í svörum þar sem karlar voru almennt neikvæðari en konur gagnvart búsetu og upplifðu síður að þeir hefðu áhrif á samfélagið eða tilheyrðu því.
Jákvæð þróun atvinnulífs styrkir samfélagið
Í rýnihópum kom fram að íbúar telja miklar jákvæðar breytingar hafa orðið í atvinnulífi á undanförnum árum, ekki síst vegna uppbyggingar laxeldis. Að þeirra mati hafa fjölgun starfa, aukin þjónusta og bættar samgöngur styrkt samfélög sem áður glímdu við fólksfækkun og samdrátt.
Þátttakendur lýstu jafnframt þeirri upplifun að neikvæð umræða um svæðið væri áberandi á landsvísu og að jákvæðar fréttir af samfélaginu fengju ekki nægilega athygli.
Niðurstöðurnar benda einnig til bjartsýni meðal íbúa gagnvart nýju heimastjórnarfyrirkomulagi. Þeir telja að það geti aukið áhrif þeirra á eigið nærumhverfi, þótt enn sé takmörkuð reynsla komin á fyrirkomulagið.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta