Stefnir í tvöföldun nemendafjölda á sumarönn á Bifröst
Mikill áhugi er á námi á sumarönn á Bifröst. Háskólinn opnaði fyrir umsóknir um námið fyrir viku síðan og umsóknir eru strax farnar að berast. Nemendafjöldinn á sumarönn gæti tvöfaldast ef marka má fyrstu viðbrögð.
Háskólinn hefur nú opnað fyrir umsóknir nýrra nemenda sem ýmist vilja innrita sig formlega í nám við skólann strax á sumarönn eða taka einstök námskeið. Ennfremur hefur verið fjölgað námskeiðum fyrir núverandi nemendur.
Háskólinn á Bifröst hefur boðið uppá reglulegt nám á sumarönn fyrir nemendur í grunnnámi sem hafa þannig getað stytt námstíma sinn. Nú er í fyrsta sinn boðið uppá námskeið í meistaranámi auk grunnnáms og námskeiðum í Háskólagátt fjölgað.
Umferð inn á heimasíðu skólans jókst um 80% eftir að námið var kynnt og ljóst að þúsundir einstaklinga vildu kynna sér möguleikana. Það skiptir miklu máli að námskeiðin eru kennd í fjarnámi en Háskólinn á Bifröst er í farabroddi í fjarnámi meðal íslenskra háskóla og skólinn hefur starfað hnökralítið nú þegar mikil röskun hefur orðið almennt á skólastarfi í landinu.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta