Starfsstöð Háskólans á Bifröst flutt á nýjan stað í Reykjavík
Starfsstöð Háskólans á Bifröst í Reykjavík hefur verið flutt úr Borgartúni 18 yfir á Suðurlandsbraut 4, þar sem skólinn hefur nú fengið nýja aðstöðu á sjöundu hæð. Fyrsti vinnudagur starfsfólks á nýjum stað var mánudagurinn 23. nóvember.
Flutningarnir fóru fram vikuna á undan og voru skipulagðir af mikilli fagmennsku af þeim Iðunni og Kristni, fjármálastjóra Bifrastar, sem stýrðu verkefninu frá upphafi til enda. Jafnframt unnu Arna og Kristófer hjá upplýsingatæknideild skólans hörðum höndum við að tengja og samræma tæknibúnað starfsstöðvanna fram á helgina, svo allt væri sem best undirbúið fyrir starfsfólk þegar það mætti til vinnu á mánudagsmorgni.
Áður en flutningunum lauk buðu fyrrum nágrannar okkar hjá Virk starfsfólki Bifrastar til morgunverðar og kveðjustundar síðasta föstudag, sem markaði formlega síðasta dag skólans í húsnæði þeirra. Við það tækifæri færðu þau starfsfólki kveðjugjöf, og starfsfólk skólans afhenti þeim blómvönd í þakkarskyni fyrir ánægjulegt og gott sambýli undanfarin ár.
Flutningarnir marka nýjan kafla í starfsemi Háskólans á Bifröst í Reykjavík. Með nýrri aðstöðu skapast tækifæri til að horfa fram á veginn, efla samstarf og byggja á þeim góða grunni sem þegar hefur verið lagður. Við vonum að starfsfólk njóti þess að koma sér fyrir í nýju umhverfi og líti á breytingarnar sem hvatningu til áframhaldandi sóknar til framtíðar.
Myndasafn
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta