25. júní 2020
Starf alþjóðafulltrúa við Háskólann á Bifröst
Háskólinn á Bifröst auglýsir eftir alþjóðafulltrúa með þekkingu, metnað og reynslu á sviði alþjóðlegra samskipta og áhuga á virkri þátttöku í frekari uppbyggingu og þróun alþjóðlegra tengsla og skiptináms. Bifröst er framsækinn háskóli sem hefur verið leiðandi í uppbyggingu hagnýts fjarnáms á háskólastigi hér á landi síðastliðin 20 ár.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
-
Verkefnastjórn alþjóðlega sumarskólans og náms fyrir erlenda nema.
-
Markaðssetning og kynning á námsframboði.
-
Þjónusta við erlenda nema skólans.
-
Umsjón með skiptinemum.
-
Samskipti við erlenda samstarfsskóla.
-
Móttaka erlendra skiptikennara og aðstoð við heimakennara.
-
Umsóknir í evrópskar starfsáætlanir.
-
Þátttaka í erlendum tengslanetum.
-
Önnur þróunarverkefni og tilfallandi verkefni á alþjóðasviði.
-
Virkt samráð við markaðssvið, kennslusvið og deildarforseta.
Hæfniskröfur:
-
Háskólapróf sem nýtist í starfi.
-
Reynsla af alþjóðasamskiptum er æskileg.
-
Reynsla úr skólastarfi er æskileg.
-
Skipulagshæfileikar.
-
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
-
Þjónustulipurð og jákvæðni í samskiptum.
-
Menningarlæsi.
-
Mjög góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti.
Umsókn: Með umsókn skulu fylgja náms- og starfsferilsskrá, afrit af útskriftarskírteinum, ásamt kynningarbréfi þar sem lýst er reynslu er nýtist í starfi alþjóðafulltrúa. Starfsstöð: Bifröst.
Nánari upplýsingar og umsóknarvef er að finna hér: https://alfred.is/starf/althjodafulltrui
Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí 2020.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta