Staðgengill rektors tekur til starfa
11. febrúar 2026

Staðgengill rektors tekur til starfa

Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, forseti félagsvísindadeildar, hefur tekið við sem settur rektor Háskólans á Bifröst. Hún mun gegna starfinu tímabundið á meðan unnið er að ráðningu nýs rektors, í kjölfar þess að dr. Margrét Jónsdóttir Njarðvík lét af störfum.

Ólína hefur gegnt stöðu deildarforseta félagsvísindadeildar við Háskólann á Bifröst frá 2022 og hefur verið staðgengill rektors frá 2023. Á þeim tíma hefur félagsvísindadeild eflst verulega, námsframboð hefur verið aukið og nemendum fjölgað í takt við þá þróun.

Ólína hefur víðtæka stjórnunarreynslu, var m.a. skólameistari við Menntaskólann á Ísafirði í hálfan áratug. Hún hefur tekið þátt í að móta og byggja þjóðfræði upp sem kennslu- og fræðigrein við Háskóla Íslands. Hún hefur stýrt og leitt saman samstarfsaðila í alþjóðlegu vísindasamstarfi og tekið þátt í að koma á fót rannsókna- og fræðasetrum á landsbyggðinni. Þá leiddi hún á sínum tíma þróunarverkefni við Háskóla Íslands vegna þróunar fjarnáms við Háskólasetur Vestfjarða. Ólína á sæti í stjórn opna háskólanetsins OpenEU.

Þess má geta að Ólína hefur í gegnum árin vakið athygli sem hagyrðingur góður og hefur unnið til ýmissa verðlauna og viðurkenninga á því sviði. Hún var um skeið formaður Óðfræðifélagsins Boðnar og varaformaður kvæðamannafélagsins Iðunnar. Ólína hefur um langt árabil verið virkur björgunarsveitarmaður og fararstjóri fyrir Ferðafélag Íslands.

Starfsfólk og stjórn háskólans þakkar dr. Margréti Njarðvík fráfarandi rektor fyrir framlag hennar til háskólans á undanförnum árum og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni.