Skrásetningargjald Háskólans á Bifröst hækkar fyrir skólaárið 2026–2027
Frá og með næsta skólaári 2026 – 2027 verður gerð breyting á gjaldskrá háskólans sem felur í sér hækkun á skrásetningargjaldi úr 75.000 kr. í 100.000 kr. Breytingin tekur gildi frá og með haustönn 2026. Skrásetningargjaldi er ætlað að standa straum af kostnaði við skráningu nemenda auk annarrar þjónustu við nemendur utan kennslu og rannsókna.
Við mat á breytingunni var litið til þróunar kostnaðar á undanförnum árum, þar á meðal hækkunar á rekstrarkostnaði og kostnaði við nemendaþjónustu. Útreikningar sýna að raunverulegur kostnaður við þá þjónustu sem veitt er nemendum hefur hækkað umfram fyrri gjaldskrárbreytingar. Hækkunin er því liður í að tryggja sjálfbæran rekstur og viðhalda gæðum þjónustu við nemendur.
Nánari upplýsingar um gjaldskrá má finna á vef Háskólans á Bifröst.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta