2. mars 2023

Skapar þú framtíðina?

Þann 11. mars næstkomandi verður haldinn opinn menningarfundur um áhrif menningar og skapandi greina á nýsköpun á Vesturlandi

Yfirskrift menningarmótsins er Framtíðin er spennandi og fer það fram á Bifröst á vegum IN SITU Evrópuverkefnisins þann 11. mars nk. kl. 13:00-17:00. 

Fyrir þá sem vilja þiggja er jafnframt kvöldverður í boði og lýkur kvölddagskrá menningarmótsins kl. 21:00.

Eru allir sem búa á Vesturlandi og langar að taka þátt í að móta framtíð landshlutarins hvattir til að koma á Bifröst og taka þátt í þessum áhugaverða viðburði.

Vesturland er eitt af sex tilraunsvæðum Evrópurannsóknarinnar IN SITU sem hvetur til samtals um áskoranir og tækifæri í atvinnugreininni. Við hvetjum alla sem starfa innan menningar og skapandi greina til að mæta, þetta er umræða sem skiptir máli fyrir samfélagið og þróun þess. Umræðan er til alls fyrst og hún getur haft áhrif á framgang menningar og skapandi greina.

IN SITU er nýtt alþjóðlegt rannsóknarverkefni sem Háskólinn á Bifröst er aðili að og tekur þátt í að vinna fram til ársins 2026. Verkefnið er styrkt af Horizon sjóð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. IN SITU er framkvæmdarstýrð rannsókn sem skoðar mikilvægi tengsla á landfræðilegu rými, samfélagslegum áhrifum fólks og menningarstarfsemi. Hún byggir á mikilvægi þeirra sem koma að menningarstarfsemi á landsvæðinu, sem til rannsóknar er, og áhrifum þeirra á uppbyggingu samfélagsins.

Því viljum við biðja fólk um að taka laugardaginn 11. mars frá og njóta hans með okkur á Bifröst í góðu yfirlæti og gæðaspjalli.

Hér má skrá þötttöku sína á menningarmótið

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta