Skapandi greinar sem drifkraftur í landsbyggðum í Sprengisandi
27. maí 2025

Skapandi greinar sem drifkraftur í landsbyggðum í Sprengisandi

Í nýlegu viðtali í þættinum Sprengisandur á Bylgjunni ræddi Anna Hildur Hildibrandsdóttir, fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst og stjórnarformaður Rannsóknaseturs skapandi greina, við Kristján Kristjánsson, stjórnanda útvarpsþáttarins, um mikilvægi skapandi greina fyrir samfélags- og efnahagsþróun á landsbyggðinni. Þar kom fram að menning og sköpun séu ekki einungis til skrauts heldur lykilinnviðir samfélagsins. Umfjöllun Sprengisands er að tilefni ráðstefnunnar Skapandi greinar sem drifkraftur í landsbyggðum: Skörun menningar, sköpunarkrafts og frumkvöðlastarfs (e. Unlocking the Power of Rural CCIs: The Intersection of Culture, Creativity and Entrepreneurship) sem fer fram í Eddu - húsi íslenskunnar, föstudaginn 30. maí kl 09.00.

Alþjóðleg ráðstefna í Eddu 30. maí – Um skapandi greinar, frumkvöðlastarf og nýsköpun á landsbyggðinni

Föstudaginn 30. maí 2025 fer fram alþjóðleg ráðstefna í Eddu – húsi íslenskunnar í Reykjavík undir yfirskriftinni Skapandi greinar sem drifkraftur í landsbyggðum: Skörun menningar, sköpunarkrafts og frumkvöðlastarfs. Ráðstefnan er skipulögð af Rannsóknasetri skapandi greina á Íslandi í samstarfi við rannsóknarverkefnið IN SITU: Place-based Innovation of Cultural and Creative Industries in Non-urban Areas sem styrkt er af Horizon Europe (styrktarsamningur nr. 101061747), auk samvinnu við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Á ráðstefnunni kemur saman fjöldi fræðimanna, stefnumótenda, listamanna og frumkvöðla frá Íslandi og víðar að úr Evrópu til að fjalla um hvernig menning og skapandi greinar (e. CCIs) geta stuðlað að nýsköpun, sjálfbærni og samfélagslegri þróun á landsbyggðinni. Sérstök áhersla verður lögð á hvernig skapandi starfsemi getur styrkt lífleg, sjálfbær og seig samfélög utan þéttbýlis, og hvernig frumkvöðlastarf og skapandi hugsun spila lykilhlutverk í þeirri þróun.

Meðal fyrirlesara eru sérfræðingar frá Íslandi, Ítalíu, Portúgal, Finnlandi, Spáni og fleiri löndum.

Áhugasamir geta skráð sig hér

Ráðstefnan fer fram á ensku og verður streymt í beinni hér hjá RSG.