16. desember 2021

Sínum augum lítur hver á silfrið

Út er komin skýrslan Sínum augum lítur hver á silfrið - Búsetuskilyrði og blæbrigði þeirra í hugum íbúanna, eftir Vífil Karlsson og Sigurborgu Kr. Hannesdóttur. Rannsóknin gekk út á meta hvaða aðdráttarafl hin ýmsu ólíku samfélög á landsbyggðinni búa yfir.

Lögð var áhersla á að skoða fámenn einangruð samfélög og þau síðan borin saman við fjölmenn samfélög á jaðri höfuðborgarsvæðisins eins og Akranes og/eða fjölmenn, fjarlægari og e.t.v. einangraðri samfélög eins og Ísafjörð.

Í ljós kom að íbúar vítt og breitt um landið hafa ólíkar óskir og þarfir og þess vegna eru samfélögin mjög ólík. Íbúar fámennari og einangraðri samfélaga leggja meira upp úr aðgengi að þáttum eins og fjölbreyttri náttúru og friðsæld á meðan gæði grunnskóla, leikskóla og unglingastarfs toga meira í íbúa á jaðri höfuðborgarsvæðisins. Þarfir og óskir íbúa fjölmennra, fjarlægari og e.t.v. einangraðri staða eru síðan á vissan hátt þarna mitt á milli.

Í rannsókninni kom ýmislegt fleira í ljós, m.a. mikilvægi snyrtilegs umhverfis og ásýndar bæja og sveita fyrir velferð íbúanna.

Rannsóknin byggir á skoðanakönnun þar sem rúmlega 6.000 tóku þátt árin 2016 og 2017 auk gagna fjölda íbúaþinga vítt og breitt um landið. Hana má nálgast í heild sinni hér á vef Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, SSV. Útgefandi er Deigla, rit atvinnuþróunarfélaganna og landshlutasamtakanna.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta