
Sigurhópurinn ásamt leiðbeinanda sínum
23. maí 2025Sigurvegarar Missó 2025
Þessa vikuna var Missó vika, en Missó er viðburður þar sem misserisvarnir nemenda í grunnnámi hjá Háskólanum á Bifröst fara fram. Fjöldi hópa vörðu misserisverkefni sín að venju fyrir dómara, leiðbeinendur og fundarstjóra, auk áheyrnarhóps.
Sigurvegarar Missó 2025 eru þau Bjarni Ingimarsson, Erna Björg Jónmundsdóttir, Heiðar Örn Jónsson, Inga María Warén Árnadóttir og Viggó Matthías Sigurðsson. Verkefnið þeirra bar titilinn: Telja sjúkraflutningamenn í dreifðari byggðum landsins sig fá nægilegan fjölda verkefna, ásamt sí- og endurmenntun til að viðhalda færni í starfinu? Leiðbeinandi þeirra var Sævar Ari Finnbogason aðjúnkt við Háskólann á Bifröst.
Umsögn leiðbeinanda þeirra var svohljóðandi:
Verkefni hópsins er frábært dæmi um það hvernig misserisverkefni getur varpað ljósi á aðkallandi viðfangsefni og unnið mikilvæga greiningu á vandamáli og sett fram tillögur að úrbótum. Viðfangsefnið er menntun sjúkraflutningamanna og möguleikar þeirra til símenntunar til að viðhalda þekkingu og færni í starfi. Rannsóknin er yfirgripsmikil og metnaðarfull og höfundar blanda saman fræðilegri greiningu og megindlegum og eigindlegum rannsóknaraðferðum, m.a. með viðtölum og stórri könnun meðal sjúkraflutningamanna sjálfra. Það er full ástæða til að hvetja höfunda til að kynna niðurstöðurnar fyrir hagsmunaaðilum og stjórnvöldum , enda sýnir rannsóknin að staðan er ekki viðunandi, enda er um öryggi og mannslíf að tefla.
Fyrir leiðbeinendur eru forréttindi að vinna með jafn samhentum og áhugasömum hópi. Enda sást það vel í vörninni þar sem allir hópmeðlimir voru virkir og þekktu rannsóknina út og inn. Auk þess var augljóst að meðlimir hópsins þekkja viðfangsefnið náið, enda búa þau yfir mikilli reynslu af störfum í þessum geira og sú reynsla hefur svo sannarlega nýst við verð verkefnisins.
Við óskum hópnum innilega til hamingju með frábæran árangur.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta