Margrét Jónadóttir Njarðvík, rektor Háskólans við Bifröst á síðasta fundi vísinda- og tækniráðs í núverandi mynd. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, ávörpuðu fundinn.

Margrét Jónadóttir Njarðvík, rektor Háskólans við Bifröst á síðasta fundi vísinda- og tækniráðs í núverandi mynd. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, ávörpuðu fundinn.

6. mars 2023

Síðasti fundur vísinda- og tækniráðs

Vísinda- og tækniráð kom saman til fundar í Ráðherrabústaðnum sl. föstudag á síðasta fundiráðsins í núverandi mynd, en hlutverki og heiti ráðsins var breytt með lögum sem taka gildi 1. apríl nk.

Með breytingunum verða ráðgefandi og stefnumótandi hlutverk ráðsins aðskilin þannig að annars vegar verður starfandi ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun og hins vegar sjálfstætt og faglegt Vísinda- og nýsköpunarráð. Ráðið verður skipað níu fulltrúum sem forsætisráðherra skipar í samráði við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra á grundvelli tillagna sérstakrar tilnefningarnefndar.

Á fundi Vísinda- og tækniráðs í dag, sem var sá 45. í tuttugu ára sögu ráðsins, ræddi Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um stöðu aðgerða í Vísinda- og tæknistefnu 2020-2022. Þá fjallaði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, um skilvirkari og bætt fjárframlög til háskóla. Loks kynntu Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra helstu áherslur á málefnasviðum sinna ráðuneyta sem tengjast áherslum Vísinda- og tækniráðs.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta