Settur rektor ráðin áfram
Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, settur rektor við Háskólann á Bifröst, hefur verið ráðin sem rektor skólans til frambúðar, frá 1. nóvember 2026. Ólína var staðgengill rektors þegar hún tók við starfinu með skömmum fyrirvara í febrúar síðastliðnum og var þá sett tímabundið til áramóta.
Ólína hefur verið prófessor og gengt stöðu deildarforseta félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst frá 2022. Hún er doktor í íslenskum bókmenntum og þjóðfræðum og hefur birt fjölda fræðigreina, bókarkafla og bóka. Hún hefur áralanga reynslu af háskólakennslu, rannsóknum og akademískri stjórnun. Starfsferil sinn hóf Ólína á fjölmiðlum sem blaðamaður, ritstjóri og um skeið sjónvarpsfréttamaður á Ríkisútvarpinu á níunda áratugnum.
Ólína var um árabil virk í íslenskum stjórnmálum. Hún var borgarfulltrúi og borgarráðsmaður í Reykjavík 1990-1994 og alþingismaður fyrir Samfylkinguna í NV-kjördæmi 2009-2016. Á sama tíma gegndi hún formennsku og varaformennsku í þingnefndum, var meðal annars formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins og forseti þess, einnig formaður og varaformaður í atvinnuveganefnd og umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Árið 2016 var hún varaformaður Norðurlandaráðs.
Samhliða öðrum störfum hefur Ólína verið virkur rithöfundur og hafa verið gefnar út eftir hana níu bækur. Í frístundum er hún björgunarsveitarmaður með leitarhund og hefur um margra ára skeið verið fararstjóri í gönguferðum Ferðafélags Íslands á sumrin.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta