Sértæki byggðakvótinn skilar sterkustu vísbendingunum um jákvæð byggðaáhrif
22. október 2026

Sértæki byggðakvótinn skilar sterkustu vísbendingunum um jákvæð byggðaáhrif

Ný rannsókn Rannsóknarseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum (RBS) við Háskólann á Bifröst bendir til þess að sértæki byggðakvótinn hafi jákvæðari tengsl við efnahagslega þróun sjávarbyggða en aðrar byggðaaðgerðir fiskveiðistjórnunarkerfisins. Niðurstöðurnar koma að nokkru leyti á óvart, einkum hvað varðar strandveiðar og línuívilnun.

Í rannsókninni, sem ber heitið Strandveiðar og byggðakvótar: Verður aukinna umsvifum í strandveiðum og byggðakvótum vart í auknum atvinnutekjum eða útsvarstekjum viðkomandi sveitarfélaga? og var unnin af Vífli Karlssyni og Sveini Agnarssyni, voru áhrif fimm byggðaaðgerða fiskveiðistjórnunarkerfisins könnuð: Strandveiða, línuívilnunar, almenns og sértæks byggðakvóta og skel- og rækjubóta. Stuðst var við umfangsmikil gögn frá árunum 2008–2024 og meðal annars kannað samband þessara aðgerða við útsvarstekjur sveitarfélaga, atvinnutekjur íbúa, atvinnuleysi, íbúaþróun og fasteignamarkað.

Helsta niðurstaðan er sú að sértæki byggðakvótinn, sem Byggðastofnun ráðstafar, kemur best út í samanburðinum. Marktæk jákvæð fylgni mældist milli úthlutana úr honum og útsvarstekna, atvinnutekna, íbúaþróunar og fjölda seldra íbúða. Jafnframt mældist neikvæð fylgni við atvinnuleysi. Athygli vekur að jákvæð fylgni við atvinnutekjur var meira en tvöfalt sterkari hjá konum en körlum.

Niðurstöður fyrir aðrar byggðaaðgerðir voru mun óljósari. Skel- og rækjubætur komu næstbest út og almenni byggðakvótinn þar á eftir. Línuívilnun og strandveiðar komu hins vegar lakast út í samanburðinum. Þannig mældist meðal annars neikvæð fylgni milli strandveiða og útsvarstekna sveitarfélaga, þótt jákvæð tengsl kæmu fram við atvinnutekjur kvenna.

Rannsóknin sýnir jafnframt hversu mismunandi mikilvægi strandveiða er eftir byggðarlögum. Í Árneshreppi á Ströndum hefur strandveiðiafli til dæmis verið allt að 90% af lönduðum afla, en mun lægra hlutfall í flestum öðrum sjávarútvegssveitarfélögum. Þá jókst hlutdeild strandveiða í byggðaaðgerðum fiskveiðistjórnunarkerfisins úr 40% í 46% milli fiskveiðiáranna 2020/2021 og 2024/2025. Það á við um önnur kerfi líka. Línuívilnunarafli er um 60% af lönduðum afla í Strandabyggð og Kaldrananeshreppi. Almenni byggðkvótinn er á þennan hátt einna stærstur í Húnaþingi vestra, Súðavíkurhreppi og Strandabyggð.

Þá hafa fiskveiðar mjög svo mis mikil áhrif á efnahag sveitarfélaga en mest í Snæfellsbæ, Kaldrananeshreppi, Sveitarfélaginu Skagaströnd, Grýtubakkahreppi, Vestmannaeyjabæ og Grundarfjarðarbæ svo þau sex stærstu séu nefnd.

Höfundar leggja áherslu á að niðurstöðurnar sýni tölfræðileg tengsl en sanni ekki orsakasamhengi. Þær útiloki heldur ekki að einstakar byggðaaðgerðir hafi verulega jákvæða þýðingu fyrir tiltekin byggðarlög þótt slík áhrif komi ekki skýrt fram í heildargreiningunni.

Rannsóknin var styrkt af Byggðarannsóknasjóði og birtist í ritröð RBS í október 2026 undir heitinu Strandveiðar og byggðakvótar: Verður auknum umsvifum í strandveiðum og byggðakvótum vart í auknum atvinnutekjum eða útsvarstekjum viðkomandi sveitarfélaga?

Lesa rannsóknina: Strandveiðar og byggðakvótar (PDF)