F.v. Stefán Guðjónsson, ræðismaður Bangladesh á Íslandi, Shahidul Karim, sendiherra Bangladesh á Íslandi, Bjarni Már Magnússon, deildarforseti lagadeildar og aðstoðarmaður sendiherrans, Md. Mehebub Zaman.
21. september 2023Sendiherra Bangladesh í heimsókn
Sendiherra Bangladesh sótti ásamt föruneyti Háskólann á Bifröst heim til að kynna sér starfsemi háskólans.
Með sendiherranum í för var aðstoðarmaður hans og Stefán Guðjónsson, ræðismaður Bangladesh á Íslandi, en sendiherrann er með aðsetur í Kaupmannahöfn.
Bjarni Már Magnússon, prófessor og deildarforseti lagadeildar veitti af hálfu Háskólans á Bifröst sendiherranum móttöku í starfsstöð HB í Borgartúni í Reykjavík.
Þess má svo geta að af hálfu Háskólans á Bifröst réði tilviljun e.t.v. ekki fullkomlega för í móttökunni, en Bjarni var þátttakandi í úrlausn milliríkjadeilna Bangladesh og Myanmar sem fóru á sínum tíma fyrir Alþjóðlega hafréttardómstólinn í Hamborg.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta