Samtal um skapandi greinar: Skapandi ferli tölvuleikja
Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG), í samstarfi við CCP, býður í samtal um skapandi greinar miðvikudaginn 8. apríl kl. 10:15–11:45 í húsakynnum CCP í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík.
Athygli er vakin á því að fundirnir fara yfirleitt fram fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl. 8:30. Að þessu sinni fer fundurinn hins vegar fram á öðrum vikudegi og á annarri tímasetningu.
Að þessu sinni er sjónum beint að tölvuleikjagerð sem skapandi grein og þeim fjölbreyttu ferlum sem liggja að baki þróun leikja. Fjallað verður um hvernig aðrar skapandi greinar og tæknileg vinna fléttast inn í ferlið, auk þess sem varpað verður ljósi á áskoranir og tækifæri í starfi leikjahönnuða. Viðburðurinn fer fram á ensku.
Fjórir fyrirlesarar veita innsýn í skapandi ferlið:
- Halldór Snær Kristjánsson, framkvæmdastjóri, listrænn stjórnandi og meðstofnandi Myrkur Games
- María Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Parity Games
- Joon Van Hove, sjálfstætt starfandi leikjahönnuður
- Steingerður Lóa Gunnarsdóttir, sjálfstætt starfandi leikjahönnuður og stundakennari við Háskólann í Reykjavík
Erindum verður streymt en að þeim loknum lýkur streyminu og opnað verður fyrir umræður meðal viðstaddra.
CCP býður viðstöddum upp á kaffi.
Nánari upplýsingar, dagskrá og skráningu má nálgast hér.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta