Samtal um skapandi greinar: Hvað þarf að ræða?
Fimmtudaginn 5. mars fer fram samtal skapandi greina með nokkuð öðruvísi sniði en áður. Að þessu sinni verða engin formleg erindi og engin pallborð. Í staðinn einblínum við alfarið á opið samtal og að skapa rými þar sem þátttakendur geta rætt bæði sín á milli og við okkur. Fundurinn fer fram kl. 8.30-10.15 í höfuðstöðvum CCP í Grósku, 3. hæð.
Tengslanetið í kringum Rannsóknasetur skapandi greina hefur farið ört vaxandi og við viljum nýta tækifærið til að bjóða fólki úr ólíkum áttum skapandi greina að hittast, miðla reynslu og ræða málin saman. Við hvetjum iðkendur, stjórnendur, fræðafólk, stefnumótendur og alla sem hafa áhuga á skapandi greinum til að taka þátt samtalinu. Þátttakendur raða sér við borð þar sem hópstjóri heldur utan um umræður og tekur saman helstu punkta. Við hvetjum fólk til að mæta snemma og næla sér í kaffi og morgunmat í boði CCP. Teams-fundur verður einnig í boði fyrir þau sem ekki komast á staðinn, fjöldi þeirra fer eftir skráningu. Þá fer samtalið fram á ensku á 1-2 borðum (eftir skráningu). Þátttakendur geta lagt fram tillögur að umræðuefnum við skráningu.
Markmið fundarins eru að:
- öðlast dýpri innsýn í stöðu og mögulega framtíð skapandi greina á Íslandi
- greina spurningar sem vert er að rannsaka, ræða og þróa frekar
- skapa opið samtalsrými fyrir fjölbreyttan hóp þátttakenda
Viðburðinum verður ekki streymt að þessu sinni.
Nánari upplýsingar, dagskrá og skráningarhlekk má finna á heimasíðu viðburðarins.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta