
Þorbjörg Daphney prófessor við Listaháskóla Íslands, Lara Hoffman, nýdoktor við Háskóla íslands og Silvia Ferrera, dósent í félagsfræði við Háskólann í Coimbra í Portúgal.
28. maí 2025Samfélagsleg fyrirtæki í menningu og listum
Silvia Ferreira, dósent í félagsfræði við Háskólann í Coimbra í Portúgal og rannsakandi við Centre for Social Studies, dvelur nú á Íslandi í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu sem nefnist: Skapandi greinar sem drifkraftur í landsbyggðum: Skörun menningar, sköpunarkrafts og frumkvöðlastarfs.
Silvia fjallar á ráðstefnunni samfélagsleg fyrirtæki og kosti þeirra fyrir fólk sem starfar í menningu og listum en erindi hennar nefnist: Social enterprise in arts and culture for sustainable transition. Í fyrirlestrinum fjallar hún um þriðja form rekstaraðila í menningu og listum, samfélagsleg fyrirtæki, sem viðbót við opinberar stofnanir og markaðsdrifin fyrirtæki. Undir þetta hugtak falla meðal annars samvinnufélög, félagasamtök og aðrar blandaðar rekstrarmyndir sem sameina samfélagslega ábyrgð, lýðræðislega stjórnarhætti og sterka samfélagslega eða menningarlega köllun.
Í heimsókn sinni til Íslands hefur Silvia hitt íslenska fræðimenn sem rannsaka samvinnufélög sem rekstrarform, og fundaði hún með Þorbjörgu Daphney prófessor við Listaháskóla Íslands og Löru Hoffman, nýdoktor við Háskóla Íslands. Þær vinna að nýrri rannsókn á vegum Rannsóknaseturs skapandi greina sem miðar að því að þróa mælikvarða á samfélagslegum áhrif lista og menningar.
Alþjóðleg ráðstefna í Eddu 30. maí – Um skapandi greinar, frumkvöðlastarf og nýsköpun á landsbyggðinni
Föstudaginn 30. maí 2025 fer fram alþjóðleg ráðstefna í Eddu – húsi íslenskunnar í Reykjavík undir yfirskriftinni Skapandi greinar sem drifkraftur í landsbyggðum: Skörun menningar, sköpunarkrafts og frumkvöðlastarfs. Ráðstefnan er skipulögð af Rannsóknasetri skapandi greina á Íslandi í samstarfi við rannsóknarverkefnið IN SITU: Place-based Innovation of Cultural and Creative Industries in Non-urban Areas sem styrkt er af Horizon Europe (styrktarsamningur nr. 101061747), auk samvinnu við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Á ráðstefnunni kemur saman fjöldi fræðimanna, stefnumótenda, listamanna og frumkvöðla frá Íslandi og víðar að úr Evrópu til að fjalla um hvernig menning og skapandi greinar (e. CCIs) geta stuðlað að nýsköpun, sjálfbærni og samfélagslegri þróun á landsbyggðinni. Sérstök áhersla verður lögð á hvernig skapandi starfsemi getur styrkt lífleg, sjálfbær og seig samfélög utan þéttbýlis, og hvernig frumkvöðlastarf og skapandi hugsun spila lykilhlutverk í þeirri þróun.
Meðal fyrirlesara eru sérfræðingar frá Íslandi, Ítalíu, Portúgal, Finnlandi, Spáni og fleiri löndum.
Ráðstefnan fer fram á ensku og verður streymt í beinni hér hjá RSG.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta