
RBS hlaut styrk úr Byggðarannsóknasjóði
Rannsóknasetur í byggða- og sveitastjórnarmálum hlaut á dögunum 3,3 milljóna styrk úr Byggðarannsjóknasjóði til verkefnisins Strandveiðar og byggðakvótar - Verður auknum umsvifum í strandveiðum og byggðakvótum vart í auknum atvinnutekjum eða útsvarstekjum viðkomandi sveitafélaga? Þó athyglinni verði beint að strandveiðum og byggðakvótum í viðkomandi verkefni, þá verður annað í fiskveiðistjórnunarkerfinu einnig skoðað, einkum til samanburðar.
Markmið með verkefninu er að meta árangur ofangreindra kerfa í þeim tilgangi að greina betur áhrif á tekjur sveitafélaga og geta þannig lagt hlutlægt efni inn í umræðuna um stjórn fiskveiða. Upplýsingar ættu að nýtast itl að bæta ákvarðanatöku stjórnvalda og bæta þar með árangur og arðsemi veiða við strendur Íslands.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta