Rannsóknir um byggðaþróun kynntar á rafrænu byggðamálþingi í dag
Rannsóknarsetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum stendur fyrir rafrænu byggðamálþingi í dag, 22. október, kl. 13–15.30. Á þinginu verða kynntar fjórar rannsóknir sem unnið hefur verið að á setrinu undanfarna tólf mánuði. Meðal viðfangsefna eru áhrif óstaðbundinna starfa á byggðaþróun, búseta ungs fólks, áhrif strandveiða og byggðakvóta á tekjur sveitarfélaga og upplifun íbúa af jafnrétti.
Markmið þingsins er að miðla nýjum rannsóknarniðurstöðum og skapa vettvang fyrir umræður um stöðu og framtíð byggðanna. Sérfræðingarnir Gréta Bergrún og Vífill Karlsson kynna rannsóknirnar fjórar og stýra málstofunni.
Að loknum kynningum verður opnað fyrir umræður undir stjórn Hugrúnar Hörpu Reynisdóttur frá Nýheimum þekkingarsetri.
Í síðari hluta þingsins verður sjónum beint að málefnum sem eru efst á baugi í landsbyggðunum. Þar munu héraðsfréttamenn úr ólíkum landshlutum fjalla um helstu áskoranir á sínum svæðum og vekja athygli á byggðamálum sem þeir telja að verðskuldi frekari rannsóknir. Þátttakendum gefst jafnframt kostur á að koma með spurningar og taka þátt í umræðum.
Dagskrá þingsins
13.00–13.20 | Óstaðbundin störf og óskabúseta
Eru óstaðbundin störf tækifæri eða ógn fyrir íbúaþróun á landsbyggðinni?
Vífill Karlsson
13.20–13.30 | Byggðabragur ungs fólks
Gréta Bergrún
13.30–13.50 | Strandveiðar og byggðakvótar
Hafa þessi kerfi áhrif á útsvarstekjur sveitarfélaga?
Vífill Karlsson
13.50–14.10 | Kynjuð upplifun jafnréttis í sveitarfélögum og byggðarlögum af mismunandi stærð
Gréta Bergrún
14.10–14.20 | Stutt hlé
14.20–14.40 | Umræður
Umræðustjóri: Hugrún Harpa Reynisdóttir, Nýheimum þekkingarsetri
14.40–15.30 | Hvað er að frétta úr landshlutunum?
Héraðsfréttamenn ræða stöðu mála í sínum landshlutum, helstu áskoranir og byggðamál sem vert er að beina sjónum fræðafólks að. Í kjölfarið verða umræður og spurningar frá þátttakendum.
Þátttaka í gegnum Teams
Þingið fer alfarið fram á netinu í gegnum Microsoft Teams.
Smelltu hér til að taka þátt í byggðamálþinginu
Fundarauðkenni: 355 819 595 154 503 2
Aðgangskóði: S6UJ2cQ7
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta