Rannsóknir í menningarstjórnun - Hrifla þriðjudaginn 29. júlí kl. 13 28. júlí 2014

Rannsóknir í menningarstjórnun - Hrifla þriðjudaginn 29. júlí kl. 13

Þriðjudaginn 29. júlí klukkan 13.00 verður fyrirlestur í Hriflu á Bifröst og umræður um rannsóknir. Tveir doktorsnemar frá Póllandi kynna verkefni tengdum íslenskri menningarstjórnun: Annarsvegar um menningariðnað og skipulagsmál við Reykjavíkurhöfn, og hinsvegar um hvernig ímynd Íslands er byggð upp í sýningum safna. Um er að ræða tvær stuttar framsögur á ensku og svo umræður.
 
Þær Weronika Pokojska og Agnieszka Pudełko eru doktorsnemar í menningarstjórnun við Jagiellonska háskólann í Kraká og starfa þessa mánuðina við Háskólann á Bifröst við rannsóknir. Fyrirlestrarnir tengjast kynningu þeirra á verkefnum sínum á Hverfisgötunni í júní en nú eru rannsóknunum lokið og því forvitnilegt að heyra um niðurstöður og úrvinnslu.
 
Verkefni Agniezku snýr að menningaruppbyggingu við hafnarsvæðið í Reykjavík og titillinn á ensku er „The revitalization of the old harbour in Reykjavik by creative and cultural industries". Verkefni Weroniku fjallar um mismunandi framsetninu á menningararfi og "hugmyndinni um Ísland" innan valinna íslenskra safna ("to examine how the image of Iceland is created through the approach to heritage and exposure in selected museums").
 
Í kynningu þeirra á verkefnum sínum þriðjudaginn 29. júlí, klukkan 13.00 í Hriflu, skýra þær í stuttu máli frá rannsóknarferlinu og niðurstöðum.
 
Allir velkomnir

 

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta