Rannsóknir á þróun mannauðsmála hér á landi í alþjóðlegu samhengi
Hópur fræðimanna við viðskiptaháskóla víða um heim hefur allt frá árinu 1989 unnið að langtíma- samanburðarrannsóknum á sviði mannauðsmála, undir merkjum Cranfield Network on International Human Resource Management (CRANET). Alls eru þátttökulöndin 50 talsins.
Á Íslandi er verkefnið leitt af Arneyju Einarsdóttur, prófessor við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst og situr hún jafnframt í alþjóðlegu ráðgjafarráði verkefnisins. Þá hafa Katrín Ólafsdóttir, dósent við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og Ásta Bjarnadóttir, skrifstofustjóri Starfsþróunar og starfsumhverfis hjá Reykjavíkurborg einnig setið um árabil í íslenska stýrihópnum. Að þessu sinni koma Arndís Vilhjálmsdóttir og Hans Haraldsson sérfræðingar í úrtaksrannsóknum hjá Spectis einnig að verkefninu til aðstoðar við gagnaöflun og greiningarvinnu.
Gagnaöflun hefur farið fram á Íslandi á þriggja til fimm ára fresti frá árinu 2003. Á þeim tíma hafa fjöldi skýrslna og fræðigreina verið gefnar út, byggðar á innlendum sem og alþjóðlegum gögnum. Næsta gagnaöflun er fyrirhuguð vorið 2026 í þátttökulöndunum 50 og hefst hér á landi í mars.
Verkefnið á Íslandi er að þessu sinni styrkt af Mannauði – félagi mannauðsfólks, Kjara- og mannauðssýslu ríkisins og Vinnuverndarsjóði Vinnueftirlitsins.
Markmið og framkvæmd
Markmið rannsóknarinnar er að greina hvernig mannauðsstjórnun er háttað í íslenskum fyrirtækjum og stofnunum og bera saman við framkvæmd í öðrum löndum. Með því fæst skýr mynd af þróun mannauðsmála hér á landi í alþjóðlegu samhengi. Einnig er leitast við að bera saman atvinnugreinar og greina niðurstöður eftir stærð fyrirtækja og stofnana.
Rannsóknin tekur til fjölbreyttra þátta mannauðsstjórnunar, meðal annars:
- Mönnunar og ráðninga
- Starfsþróunar og fræðslu
- Frammistöðumats
- Kjaramála og hlunninda
- Innri samskipta
- Samdráttaraðgerða
- Samskipta við stéttarfélög
- Skipulags og verkaskiptingar mannauðsstjórnunar
- Þroskastigs mannauðsstjórnunar (Human Resource Maturity)
Ávinningur fyrir þátttakendur
Fyrirtæki og stofnanir sem taka þátt fá ítarlega endurgjöf um eigin stöðu, auk samanburðar við heildarniðurstöður á Íslandi og alþjóðlega. Vísbendingar eru um að fyrirtæki og stofnanir sem taka þátt, nýti niðurstöður verkefnisins til að setja sér skýr markmið um þróun á sviði mannauðsmála.
Í gegnum árin hafa verið haldnir vel sóttir kynningarfundir, gefnar út skýrslur, niðurstöður kynntar á alþjóðlegum ráðstefnum, fundum og námskeiðum. Niðurstöður eru einnig nýttar hér á landi í kennslu á Bifröst, í HÍ, HR og víðar og gögn nýtt í meistara- og doktorsverkefnum og í fræðilegum rannsóknum.
Bæði íslensku gögnin og alþjóðlegi gagnagrunnurinn eru því mikilvægur grunnur að áframhaldandi þekkingaruppbyggingu á sviði mannauðsstjórnunar.
Hér má finna nokkur dæmi um birtingar fræðimanna sem taka þátt í CRANET.
Þá er einnig hægt að skoða alþjóðlega skýrslu úr síðustu gagnaöflun verkefnisins 2021–2022, sem er aðgengileg á vef SSRN (Social Science Research Network).
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta