Margrét Jónsdóttir Njarvík, rektor Háskólans á Bifröst og Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, við undirritunina.

Margrét Jónsdóttir Njarvík, rektor Háskólans á Bifröst og Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, við undirritunina.

11. janúar 2023

Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst, hafa undirritað samning um stofnun rannsóknaseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum. Með samningnum styður ráðuneytið við uppbyggingu og rekstur setursins, sem starfrækt verður af Háskólanum á Bifröst. 

Markmið samningsins er að efla jákvæða byggðaþróun og styrkja sveitarstjórnarstigið á Íslandi með markvissum rannsóknum sem stuðla að hlutlægri og faglegri umræðu og leiða til betri stefnumótunar og ákvarðanatöku. Jafnframt að efla nám og fræðslu um byggða- og sveitarstjórnarmál. 

Á meðal helstu rannsóknasvið setursins eru: 

  • Búsetukostir, búsetuskilyrði og lífsgæði íbúa,
  • búferlaflutningar og íbúaþróun,
  • þróun þéttbýlis og borga,
  • stjórnun og rekstur sveitarfélaga,
  • vinnumarkaður,
  • fasteignamarkaður.

 „Öflugar rannsóknir eru mikilvægar til að hægt sé að gera enn betur í málefnum byggða og sveitarstjórna. Rannsóknir leggja grunninn að betri áætlunum og markvissari aðgerðum“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.

Margrét þakkaði það traust sem Háskólanum á Bifröst væri sýnt. Hún sagði að skólinn myndi leggja áherslu á að skapa þverfaglegan og opinn samstarfsvettvang um byggða- og sveitarstjórnarmál með sérstaka áherslu á samstarf við ráðuneytið, Byggðastofnun, Sambands íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtök sveitarfélaga.

„Háskólinn á Bifröst hefurá undanförnum misserum haslað sér völl í rannsóknum í byggða- og sveitarstjórnarmálum. Í samningnum um rannsóknasetur á þessu áhugaverða og ört vaxandi fræðasviði felst mikilvæg viðurkenning á mikilvægi þessara rannsókna, ekki aðeins fyrir einstök byggðalög og landsbyggðirnar heldur einnig vænta hag- og byggðaþróun hér á landi til næstu áratuga,“ sagði Margrét Jónsdóttir Njarðvík.

Samningurinn gildi til þriggja ára eða til ársloka 2025. Árlegt framlag ráðuneytisins verður 12 m.kr. sem kemur annars vegar frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og hins vegar í gegnum byggðaáætlun.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta