16. febrúar 2015

Rannsókn um viðhorf íbúa Reykjanesbæjar til hælisleitenda

Í rannsókninni kemur fram að viðhorf íbúa Reykjanesbæjar til hælisleitenda er mun neikvæðara en viðhorf íbúa á höfuðborgarsvæðinu og þeir telja að til þeirra renni meiri fjármunir en raun ber vitni.

Rannsóknin er lokaverkefni Jóhönnu Maríu til B.S.-gráðu frá viðskiptadeild við Háskólann á Bifröst.

Í Reykjanesbæ voru 66 prósent aðspurðra ýmist ósammála eða mjög ósammála fullyrðingu um að „búseta hælisleitenda hér á landi sé góð fyrir samfélagið“. Í Reykjavík voru 29 prósent ósammála eða mjög ósammála fullyrðingunni.

Jóhanna segist hafa valið ritgerðarefnið þar sem hún hafi sjálf haft vissar hugmyndir um það hversu mikill kostnaður fylgdi hælisleitendum og haft frekar neikvætt viðhorf til þeirra. Hún vildi vita hver raunverulegur kostnaður bæjarins væri vegna hælisleitenda, hvernig honum væri ráðstafað eða hver greiddi hann. „Ég bjó á Suðurnesjum og vann í Reykjanesbæ á þessum tíma og varð mikið vör við frekar neikvæða umræðu. Umræðan var oft á þann veg að þeir væru að fá of mikið, kostuðu bæjarfélagið mikla peninga og hefðu ekki góð áhrif á samfélagið,“ segir hún.

Reykjanesbær var til ársloka 2013 eina sveitarfélagið sem sá um að þjónusta hælisleitendur.

Niðurstöður rannsóknarinnar voru að íbúar í Reykjanesbæ eru heilt yfir með neikvæðari sýn og viðhorf í garð hælisleitenda en höfuðborgarbúar. „Það skýrist líklega af nálægðinni, það voru svo margir hælisleitendur hér á tímabili og fólk tekur meira eftir því hér en í Reykjavík,“ segir Jóhanna.

Þegar spurt var út í fjármuni til hælisleitenda þá töldu 61 prósent þátttakenda í Reykjanesbæ of háar fjárhæðir renna til þeirra, á móti 30 prósentum svarenda í Reykjavík. Einnig var upphæðin sem Reyknesingar töldu hælisleitendurna fá mun hærri en hún er í raun.

Jóhanna segir niðurstöðurnar hafa komið sér að vissu leyti á óvart. „Ég vissi að viðhorfið væri neikvætt en ekki að það væri svona mikið og eins hvað þeir töldu að íbúarnir fengju meiri pening en raun ber vitni.“

Nánar um viðskiptafræði á Bifröst hér

Byggt á skrifum Viktoríu Hermannsdóttur fyrir visir.is.

Tekið af Vísir.is

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta