15. apríl 2026

Rannsókn um óstaðbundin störf

Íbúum í landsbyggðum gæti fjölgað um allt að 20% og fækkað um 12% á höfuðborgarsvæðinu - ef sóknarfæri sem felast í óstaðbundnum störfum yrðu nýtt í samræmi við skoðanir almennra starfsmanna ríkisins og annarra vinnuveitenda. Þetta sýna áhugaverðar niðurstöður í nýjustu rannsókn Rannsóknarseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst.

Flestir eru þó ánægðir með búsetu sína og myndu ekki breyta henni. Tækifærin liggja hins vegar hjá þeim sem myndu vilja breyta búsetu sinni. Þótt aðeins hluti þeirra sem hefur áhuga á að flytja láti verða af því, gæti það haft umtalsverð áhrif, þar sem fáar fjölskyldur geta verið mikill fengur fyrir lítil byggðarlög.

Slíkt fyrirkomulag gæti einnig dregið verulega úr umferð á höfuðborgarsvæðinu, til dæmis ef starfsfólk ynni heima 1–2 daga í viku. Það myndi jafnframt minnka streitu og auka vellíðan starfsfólks.

Gréta Bergrún Jóhannesdóttir og Vífill Karlsson gerðu rannsóknina, sem framkvæmd var fyrir SSV – Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Vesturland kemur vel út í niðurstöðunum og þar gæti íbúum fjölgað verulega ef höfuðborgarbúar hefðu aukin tækifæri til óstaðbundinnar vinnu. Fjöldi íbúa á höfuðborgarsvæðinu hefur einnig áhrif. Jafnvel þótt aðeins nokkur prósent þeirra kjósi að flytja í landsbyggðirnar er um að ræða nokkurn fjölda fólks. 

Íbúar á Vesturlandi vinna meira óstaðbundið en almennt gerist á landsvísu. Þar eru einnig fleiri sem aka lengri vegalengdir daglega til vinnu. Alls segjast 42% Vestlendinga vilja sinna vinnu sinni meira óstaðbundið, en 4% minna.

Viðhorfskönnunin sýndi að nokkur fjöldi fólks vill vinna meira óstaðbundið, að hluta eða í heild. Í því liggja gríðarleg tækifæri fyrir fyrirtæki að móta sér stefnu hvað þetta varðar.

Mörg fyrirtæki hafa þegar gert það, bæði með vellíðan starfsfólks og umhverfissjónarmið í huga. Skýrslan byggir á umfangsmikilli könnun meðal landsmanna og veitir mikilvægar vísbendingar um leiðir sem stjórnvöld geta nýtt til að hafa áhrif á byggðaþróun.

Skýrsluna má lesa á vef Háskólans á Bifröst.