Rakel Heiðmarsdóttir nýr deildarforseti Viðskiptadeildar
17. ágúst 2026

Rakel Heiðmarsdóttir nýr deildarforseti Viðskiptadeildar

Dr. Rakel Heiðmarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu deildarforseta Viðskiptadeildar við Háskólann á Bifröst. Hún mun einnig sitja í framkvæmdastjórn Háskólans.

Rakel lauk doktorsprófi í ráðgjafarsálfræði frá Unversity of Texas at Austin árið 2002. Hún hlaut Fulbright styrk til námsins og var í 12 mánaða rannsóknarverknámi við University of California at Berkeley 2001-2002.

Rakel hefur stýrt mannauðsmálum og setið í framkvæmdastjórnum hjá Norðuráli, Bláa lóninu og síðast hjá Garra, en hjá Garra var hún aðstoðar framkvæmdastjóri síðustu árin. Rakel hefur komið að háskólakennslu í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum í Texas og var fastráðin sem lektor við Viðskiptadeild Háskólans á Bifröst haustið 2024. Rakel hefur auk þess haldið ýmis námskeið á vinnustöðum og veitt stjórnunar- og mannauðsráðgjöf í fyrirtækjum og stofnunum víðs vegar um landið.     

Ég fagna því að fá Rakel í varanlega stöðu deildarforseta Viðskiptadeildar, stöðu sem hún tók tímabundið að sér með skömmum fyrirvara s.l. vor og hefur gegnt með ágætum. Ég er þess fullviss að reynsla hennar og þekking muni áfram nýtast vel í hennar störfum fyrir deildina og fyrir háskólann í heild og býð hana velkomna til starfa.“ segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor.