Ráðstefnan Norrænt málþing um ferðaþjónustu - kallað eftir erindum
Kallað er eftir erindum á 34. Nordic Symposium on Tourism and Hospitality Research, sem fer fram í Reykjavík dagana 6.–8. október 2026. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er “Tourism in a Changing World: An Active Agent for Good?” (Ferðaþjónusta í breytilegum heimi: Afl til góðra breytinga?) þar sem sjónum er beint að því hvernig ferðaþjónusta getur brugðist við loftslagsbreytingum, samfélagslegum áskorunum og hröðum breytingum í heiminum.
Meðal málstofa á ráðstefnunni er málstofa 22: “Heritage Ecologies – Creative Entrepreneurship for Regenerative Rural Futures,” (Vistkerfi menningararfs – skapandi frumkvöðlastarf fyrir endurnýjandi framtíð í landsbyggðum) sem Anna Hildur Hildibrandsdóttir, fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst og doktorsnemi í landfræði við Galway háskólann, skipuleggur ásamt prófessor Katrínu Önnu Lund við Háskóla Íslands.
Málstofan fjallar um hvernig menningararfur, skapandi frumkvöðlastarf og ferðaþjónusta geta stuðlað að sjálfbærri og endurnýjandi þróun í landsbyggðum, og hvernig nýjar nálganir geta varpað ljósi á tengsl menningar, náttúru og staðbundinna samfélaga.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta