Ráðstefna í Eddu 30. maí um skörun menningar, sköpunarkrafts og frumkvöðlastarfs
16. maí 2025

Ráðstefna í Eddu 30. maí um skörun menningar, sköpunarkrafts og frumkvöðlastarfs

Skapandi greinar sem drifkraftur í landsbyggðum: Skörun menningar, sköpunarkrafts og frumkvöðlastarfs 

Fyrsta alþjóðlega ráðstefnan á vegum Rannsóknaseturs skapandi greina (RSG) verður haldin í Eddu, húsi íslenskunnar, föstudaginn 30. maí 2025. Þar verður fjallað um áhrif menningar og skapandi greina á samfélags- og efnahagslega nýsköpun í landsbyggðum.   Varpað verður ljósi á mikilvægi frumkvöðla og staðbundna þróun til að stuðla að sjálfbærni og þrautseigju í jaðarbyggðum.   

RSG stendur fyrir ráðstefnunni í samstarfi við Árnastofnun og  rannsóknarverkefnið IN SITU sem er styrkt af Horizon Europe og fjallar um áhrif menningar og skapandi greina á svæðisbundna nýsköpun í landsbyggðum. 

Dagskrá og skráningarform má finna á vef RSG.

Ráðstefnan fer fram á ensku og fer einnig fram í streymi á Facebook-viðburði ráðstefnunnar.