Ljósmynd: Ragnar Visage
19. mars 2026QUACK rafplata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum
Gugusar hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins í raftónlist sem afhent voru í gærkvöldi. Gugusar, öðru nafni Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir, er nemandi í skapandi greinum við Háskólann á Bifröst.
Verðlaunin hlaut hún fyrir plötu sína QUACK, sem er þriðja plata hennar. Platan hefur vakið athygli fyrir frumlega nálgun og persónulegan hljóðheim innan raftónlistar og fest Gugusar enn frekar í sessi sem áhugaverðan listamann á íslenskri tónlistarsenu.
Fyrri plötur hennar eru 12:48, sem kom út árið 2022, og Listen to This Twice, sem kom út árið 2020.
Háskólinn á Bifröst óskar Guðlaugu Sóleyju innilega til hamingju með verðlaunin og óskar henni áframhaldandi velgengni á tónlistarferlinum.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta