Örnám í tónlistarviðskiptum við Háskólann á Bifröst
24. nóvember 2026

Örnám í tónlistarviðskiptum við Háskólann á Bifröst

Háskólinn á Bifröst og Listaháskóli Íslands bjóða upp á 12 ECTS eininga örnámslínu í tónlistarviðskiptum. Um er að ræða spennandi möguleika til símenntunar fyrir þá sem starfa í tónlistargeiranum. Örnámið er einnig einingarbært og getur nýst upp í háskólanám á grunnstigi.

Námskeiðið sameinar fræðilega innsýn og hagnýta þekkingu. Þátttakendur fá aðgang að þekkingu og alþjóðlegu tengslaneti sem hjálpar þeim að 
aðlagast og vaxa í ört breytilegum heimi.  Auk þess munu nemendur búa yfir góðri verkfærakistu sem þeir geta tileinkað sér í námi og starfi.  Kennslan nær til þeirra þátta sem taka við þegar sköpunarferlinu lýkur; dreifingu, markaðssetningu, útgáfustjórnun, menningarstefnu, fjármögnunar, áhorfendaþróun og stafrænnar stefnumótunar.  

Þessi námskeið gefa góða innsýn fyrir listamenn sem vilja gefa út sjálfir og eins þá sem vilja vinna með listamönnum, stýra verkefnum, leiða markaðs- eða útgáfustarf, eða skilja betur viðskipta- og rekstrarhlið tónlistar

Umsóknarfrestur: 1. desember 2026

Kynningarmyndband

Frekari upplýsingar