Örnám í frumkvöðlastarfi
13. maí 2026

Örnám í frumkvöðlastarfi

Örnám í frumkvöðlastarfi er 18 eininga námslína á ensku sem svarar kalli eftir námi sem brúar leið innflytjenda og þeirra sem hafa íslensku ekki sem móðurmál inn í háskólanám.

Námið er sérstaklega hannað fyrir þau sem hafa ekki íslensku sem móðurmál og er ætlað að brúa leið fólks inn í háskólanám og íslenskt atvinnu- og nýsköpunarumhverfi.

Námið er kennt á ensku í fjarnámi og samanstendur af þremur námskeiðum, samtals 18 ECTS einingum: Frumkvöðlastarf og nýsköpun Entrepreneurship and Innovation, Frumkvöðlastarf á Íslandi Entrepreneurship in Iceland og Hönnunarhugsun Design Thinking. Áhersla er lögð á hagnýta nálgun þar sem nemendur vinna með hugmyndavinnu, hönnunarhugsun, viðskiptaáætlanir, fjármögnun og kynningar á verkefnum.

Kennarar í náminu eru Fida Abu Libdeh, Arnar Sigurðsson og Michael Hendrix sem öll hafa mikla reynslu af frumkvöðlastarfi.

Örnámið er þróað í samstarfi við Listaháskóla Íslands og Suðurmiðstöð í Breiðholti með stuðningi frá samstarfssjóði háskólanna og er samstarfsverkefni Háskólans á Bifröst og Listaháskóla Íslands.

Sérstakur kynningarfundur verður með kennurum námslínunnar og fagstjóra föstudaginn 15. maí nk. frá kl. 12–13.

Nánari upplýsingar og hlekk á fundinn má finna hér