Orkustofnun úthlutar styrkjum vegna rannsókna á sviði smávirkjana
Orkustofnun mun á þessu ári veita tvo styrki allt að 500.000 kr. vegna rannsókna eða námsverkefna til Meistaraprófs (MSc.) á sviði smávirkjana til raforkuframleiðslu.
Markmið með styrkveitingunni er að stuðla að aðgengilegu efni fyrir þá sem hyggjast nýta landgæði til framleiðslu raforku í byggðum landsins.
Styrkirnir standa til boða öllum sem stunda rannsóknir á meistarastigi svo fremi sem verkefnin styðja við smávirkjanaverkefni Orkustofnunar.
Viðfangsefni geta til dæmis tengst, litlum jarðvarmavirkjunum, áhrif dreifðrar raforkuframleiðslu á flutnings- og dreifikerfi raforku, áhrif á orkuöryggi, þróun raforkuverðs og áhrif á arðsemi smærri virkjana, líkan fyrir kostnað við uppbyggingu og rekstur á smærri virkjunum, áhrif upprunavottorða á aukna uppbyggingu smávirkjana, hvernig er hægt að stuðla að aukinni virkni raforkumarkaðar og þannig mætti lengi telja.
Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðublað er að finna á vef Orkustofnunnar á vefslóðinni:
https://orkustofnun.is/raforka/smavirkjanir/styrkveitingar/
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta