Opnun Heimahafnar - samstarfsverkefnis háskólanna
Heimahöfn háskólakennslu var opnuð formlega þann 17. ágúst síðastliðinn. Um er að ræða samstarfsverkefni allra háskóla landsins sem hefur það að markmiði að efla hæfni í háskólakennslu og styðja við faglega þróun kennara.
Heimahöfn háskólakennslu býður upp á opin starfsþróunarnámskeið á netinu á íslensku og ensku. Verkefnið er afrakstur samstarfs allra íslenskra háskóla, með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
Haldið var málþing í tilefni opnunarinnar þar sem þemað var mikilvægi faglegrar kennsluþróunar í háskólum. þar var fjallað um mikilvægi kennsluþróunar, alþjóðlega strauma og framtíðarsýn um samstarf og gæði í íslensku háskólakerfi. Meðal þeirra sem tóku til máls voru Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Guðrún Geirsdóttir, prófessor og fagstjóri Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands, og Dr. Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöðvar Háskólans á Akureyri. Helena Sigurðardóttir kennsluráðgjafi í Háskólanum á Akureyri og John Baird kennsluráðgjafi í Háskólanum í Reykjavík kynntu og opnuðu formlega fræðslugáttina Heimahöfn háskólakennslu.
Skýr vilji til aukins samstarfs
Í tengslum við málþingið tóku fundargestir, sem komu frá öllum háskólum landsins, þátt í rafrænni könnun um stöðu og framtíð kennsluþróunar í íslenskum háskólum. Niðurstöður könnunarinnar sýndu afgerandi samhljóða viðhorf meðal þátttakenda varðandi mikilvægi þess að efla kennsluþróun til að bæta gæði náms og kennslu og að þróuð verði samræmd nálgun á sviðinu milli háskóla.
Þegar spurt var hvað myndi helst njóta góðs af auknu samstarfi háskóla nefndu flestir starfsþróun háskólakennara, sameiginleg úrræði og sérfræðiþekking, sem og tengslanet og samfélög þvert á stofnanir. Í opnum svörum um mikilvægustu skrefin á næstu 12 mánuðum komu fram fjölbreyttar en samhljóma áherslur, þar á meðal aukið svigrúm kennara til að sinna kennsluþróun, tenging kennslu við launa- og framgangskerfi, formlegt samstarf háskóla, hugsanlega með aðkomu ráðuneytis, og áframhaldandi stuðningur við og innleiðing Heimahafnar. Þátttakendur lýstu jafnframt eindregnum vilja til samstarfs.
Nánari upplýsingar um Heimahöfn háskólakennslu og námsframboð verða birtar á næstu vikum.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta