Opin málstofa í menningarstjórnun
7. apríl 2026

Opin málstofa í menningarstjórnun

Fimmtudaginn 9. apríl kl. 15:00 verður haldin opin málstofa í menningarstjórnun. Vegna góðrar þátttöku hefur verið ákveðið að færa viðburðinn í sal Visku stéttafélags, í Borgartúni 27.

Umræðuefnið er vistkerfi skapandi greina og þær breytingar sem nú eiga sér stað í umhverfi menningariðnaðarins. 

Á málstofunni verður fjallað um stöðu skapandi greina á Íslandi í ljósi nýlegra talna um starfandi í menningu og skapandi greinum. Sérstakri athygli verður beint að því hverjir teljast til skapandi greina, hvernig störf innan geirans eru skilgreind og hvernig starfsstöður eru að þróast, til dæmis í samspili sjálfstæðrar starfsemi og launaðrar vinnu. Einnig verður rætt hvernig breytingar á vinnumarkaði, skipulagi menningarstarfs og tengslum við aðrar atvinnugreinar hafa áhrif á þróun skapandi greina. Hvernig samdráttur í fjölmiðlum og kvikmyndaiðnaði hefur áhrif á heildarmyndina og hvernig tæknibreytingar geta breytt starfaskipulagi.  

Markmið málstofunnar er að skapa vettvang fyrir samtal um hvernig best sé að greina, skilja og mæla þennan mikilvæga hluta íslensks atvinnu- og menningarlífs. Málstofan er opin öllum sem hafa áhuga á menningarstjórnun, skapandi greinum og menningarstefnu.

Frummælendur eru Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknaseturs um skapandi greinar, og Njörður Sigurjónsson, prófessor og fagstjóri í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst. Með þeim verður einnig Jón Haukur Unnarsson, sem nýlega útskrifaðist úr menningarstjórnun. 

Skrá þarf sig í hlekknum hér fyrir neðan til að taka þátt í málstofunni: 

Skráning á málstofu 

Hér má finna viðburðinn á Facebook