Opið fyrir umsóknir til 7. desember
11. nóvember 2025

Opið fyrir umsóknir til 7. desember

Opnað hefur verið fyrir fyrir umsóknir í nám á vorönn og er umsóknafrestur til og með 7. desember.  

Að þessu sinni eru laus pláss í fjölbreyttu námi innan lagadeildar og félagsvísindadeildar, þar sem boðið er upp á fjölbreytt grunn- og framhaldsnám sem nýtist bæði í atvinnulífinu og til áframhaldandi náms. Nám í skapandi greinum er fullsetið, en þess má geta að áhugavert 12 ECTS eininga örnám í tónlistarviðskiptum hefst í upphafi árs. 

Í viðskiptafræðideild verður tekið á móti nýjum nemendum í grunnnám í viðskiptafræði og stjórnun í verslun og þjónustu, nám sem hefur notið vaxandi vinsælda og veitir nemendum traustan grunn til stjórnunarstarfa í ört breytilegu atvinnuumhverfi.

Allt nám við Háskólann á Bifröst fer fram í fjarnámi sem veitir nemendum sveigjanleika til að samræma nám, vinnu og fjölskyldulíf. Með áherslu á virka þátttöku, raunhæf verkefni og náið tengslanet við atvinnulífið skapa nemendur sér áhrifarík tækifæri til að byggja upp framtíð sína.

Nýttu tækifærið og tryggðu þér sæti!