Nýsköpun í opinberri þjónustu - Ráðstefna á Bifröst 16. nóvember 2015

Nýsköpun í opinberri þjónustu - Ráðstefna á Bifröst

Símenntun Háskólans á Bifröst  hélt á dögunum ráðstefnu á Bifröst þar sem evrópska samstarfsverkefninu IMPROVE var hleypt af stokkunum. Um er að ræða þriggja ára verkefni sem miðar að því að auka nýsköpun í opinberri þjónustu með notkun tæknilausna í hinum dreifðari byggðum. Á ráðstefnunni var kynnt nýstárleg aðferð við að innleiða slíka þjónustu þar sem mikil áhersla er lögð á að notendur taki þátt í að skapa hana. Ætlunin er að prufukeyra aðferðina í raunverulegum aðstæðum í þeim samfélögum þar sem þjónustan verður innleidd.

Í verkefninu sem styrkt er af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins (NPA) taka þátt aðilar frá Írlandi, Svíþjóð, Finnlandi og Noregi  ásamt Íslandi en áherslan er á lausnir í heilbrigðis, skipulags og- umhverfismálum. Um er að ræða  samstarfsverkefni háskóla, sveitarfélaga, samtaka sveitarfélaga og svæðisskrifstofa í þátttökulöndunum.

Íslensku þáttakendurnir eru Símenntun Háskólans á Bifröst og Borgarbyggð en í Borgarbyggð verður hannaður íbúavefur, þar sem upplýsingar um umhverfis og skipulags mál verða gerð aðgengileg. Auk þess geta íbúar tekið þátt með beinum hætti í þróun og skipulagi svæða í gegnum vefinn. 

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta