„Sáttmálinn er okkur mikilvæg viðspyrna upp á við og áfram veginn” segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst.

„Sáttmálinn er okkur mikilvæg viðspyrna upp á við og áfram veginn” segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst.

26. maí 2026

Nýr samskiptasáttmáli starfsfólks Háskólans á Bifröst

Samþykktur hefur verið samskiptasáttmáli starfsmanna Háskólans á Bifröst með öllum greiddum atkvæðum á starfsmannafundi sem fram fór í dag. Sáttmálanum er ætlað að vera leiðarljós í öllum samskiptum innan háskólans og efla vinnustaðamenningu hans. Sáttmálinn hefur verið í mótun með aðkomu  allra starfsmanna undanfarnar vikur. Aðgerðabinding hans er hugsuð sem lifandi skjal sem verður áfram í vinnslu og endurskoðuð ár hvert héðan í frá.

Sáttmálinn undirstrikar þá staðreynd að stjórnendur, akademía, stjórnsýsla og stoðsvið séu órjúfanlegir hlutar af sömu heild innan háskólans og beri sameiginlega ábyrgð á heilbrigðum samskiptum innan hans.

Samvinna og fagmennska í fyrirrúmi

Gildi sáttmálans skiptast í tvo meginflokka: samvinnu og fagmennsku. Undir samvinnu er lögð áhersla á virðingu, liðsheild og umhyggju, þar sem hlustun, hrósi og stuðningi er gert hátt undir höfði. Varðandi fagmennsku er horft til skýrleika við ákvarðanatöku, hreinskiptni, lausnamiðunar og virðingar fyrir mörkum og verkferlum.

Sáttmálinn tilgreinir einnig skýrt hvaða hegðun á ekki heima á vinnustaðnum. Þar á meðal er að gera lítið úr tilfinningum eða árangri samstarfsfólks, ræða viðkvæm málefni í áheyrn annarra, eða fara framhjá viðurkenndum boðleiðum.

Mikilvægur áfangi og viðspyrna

“Sáttmálinn er mikilvægur áfangi á leið. Við erum framsækinn og nemendamiðaður háskóli með skýra sérstöðu og markverða hlutdeild í íslensku háskólasamfélagi. Við getum borið höfuðið hátt, en verðum auðvitað líka að minna okkur á það reglulega á hvaða grunni við stöndum. Sáttmálinn er okkur mikilvæg viðspyrna upp á við og áfram veginn” segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst.

Sáttmálinn var samþykktur af starfsfólki á starfsmannafundi 26. maí. Hann má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

 

Samskiptasáttmáli starfsmanna Háskólans á Bifröst

 

Leiðarljós í samskiptum

Samvinna

  • Virðing: Við hlustum á og virðum sjónarmið allra sem starfa við háskólann
  • Liðsheild: Við vinnum saman, bæði innan og á milli deilda og nýtum styrkleika hvers annars
  • Umhyggja: Við sýnum nærgætni og þolinmæði í öllum samskiptum, styðjum hvert annað, hrósum og samgleðjumst hvert öðru

 

Fagmennska

  • Skýrleiki: Við tjáum okkur skýrt, faglega og af virðingu, upplýsingar eru aðgengilegar og þeim miðlað í tæka tíð
  • Hreinskiptni: Við tölum við hvert annað en ekki um hvert annað
  • Lausnamiðun: Ef upp kemur ágreiningur ræðum við saman af yfirvegun, hlustum af athygli á hvert annað og leitum sameiginlegra og uppbyggilegra lausna
  • Mörk: Við virðum persónuleg mörk, verkaskiptingu og viðurkennda verkferla

 

Þetta gerum við EKKI:

  • Að gera lítið úr tilfinningum eða áhyggjum annarra
  • Að ræða persónuleg og viðkvæm málefni samstarfsfólks í áheyrn annarra
  • Að útiloka fagþekkingu eða sjónamið þeirra sem eiga aðkomu að málum
  • Að fara inn á verksvið annarra eða framhjá viðurkenndum boðleiðum
  • Að gera lítið úr árangri eða heilindum samstarfsfólks

 

Markmið sáttmálans er að:

  • byggja upp gagnkvæmt traust meðal samstarfsfólks og á milli starfsfólks og stjórnenda
  • tryggja gagnsæi og skýrleika í ákvörðunum
  • efla virðingu, fagmennsku og sanngirni
  • skapa öruggar aðstæður fyrir starfsfólk til að tjá sig og vera virkt í starfi
  • forðast „við og þau“-menningu og auka samheldni
  • tryggja að allt starfsfólk geti haft raunveruleg áhrif á starf og stefnu háskólans

 

Forsendur sem sáttmálinn byggir á:

  • stjórnendur og starfsfólk háskólans bera sameiginlega ábyrgð á heilbrigðum og markvissum samskiptum og uppbyggilegri vinnustaðamenningu
  • heiðarleiki í samskiptum er forsenda samstarfs og trausts
  • akademía, stjórnsýsla og stoðsvið eru órjúfanlegir hlutar af sömu heild