Nýr formaður stjórnar Matvælasjóðs
Matvælaráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, hefur skipað Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur sem formann stjórnar Matvælasjóðs.
Gréta Bergrún er nýdoktor í félagsfræði frá Háskólanum á Akureyri og starfar sem sérfræðingur hjá Rannsóknarsetri byggða- og sveitarstjórnarmála við Háskólann á Bifröst. Þar áður starfaði hún við Háskólann á Akureyri við rannsóknir og kennslu og um árabil sem sérfræðingur á rannsóknarsviði hjá Þekkingarneti Þingeyinga.
Gréta Bergrún hefur unnið að fjölmörgum innlendum verkefnum sem snúa að atvinnu, nýsköpun og byggðaþróun og hefur því víðtæka reynslu í styrkjaumhverfi íslenskra samkeppnissjóða. Hún er búsett á Þórshöfn á Langanesi og sinnir sínum störfum þaðan.
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla. Í júní 2023 úthlutaði matvælaráðherra 491 milljónum króna úr sjóðnum til 46 verkefna.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta