Bjarni Már með starfsstöð Háskólans á Bifröst í Borgartúni og Höfðatorg í baksýn.

Bjarni Már með starfsstöð Háskólans á Bifröst í Borgartúni og Höfðatorg í baksýn.

15. september 2023

Nýr deildarforseti

Dr. Bjarni Már Magnússon, prófessor, hefur verið ráðinn deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst. Bjarni hóf störf við háskólann á síðasta ári, en þá hafði hann starfað sem prófessor við Háskólann í Reykjavík undangenginn áratug og sem formaður rannsóknarráðs háskólans frá árinu 2019. 

Bjarni Már lauk stúdentsprófi frá MA árið 1999, embættisprófi í lögfræði frá HÍ 2005, MA gráðu í alþjóðasamskiptum frá stjórnmálafræðideild HÍ árið 2007 og  LL.M gráðu í haf- og strandarétti frá lagadeild háskólans í Miami í Flórida ríki í Bandaríkjunum árið 2007. Þá hlaut hann lögmannsréttindi árið 2008. Doktorsritgerð sína varði hann við Edinborgarháskóla árið 2012 undir leiðsögn Alan Boyle, eins þekktasta sérfræðings Bretlandseyja í alþjóðalögum. Bjarni Már er enn fremur fyrrum Chevening, Fulbright og Cobb-Family styrkþegi. 

Eftir Bjarna Má liggur á fjórða tug fræðigreina í ritrýndum tímaritum og bókum mestmegnis á alþjóðlegum vettvangi, auk þess sem ýmsar fræðigreinar eftir hann bíða nú birtingar í alþjóðlegum fræðiritum. Brill/Nijhoff forlagið gaf út bók eftir Bjarna Má árið 2015 og hann hefur flutt fyrirlestra víða um lönd, s.s. í Suður-Kóreu, Japan, Hong Kong og Kína. 

Þess má svo geta að Bjarni Már hefur komið að ýmsum ráðgjafarverkefnum fyrir íslensk stjórnvöld, erlend ríki og einkaaðila og hafa þjóðríkin Sómalía og Nikaragúa vísað til fræðiskrifa hans í málflutningi þeirra fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta