Nýjar rannsóknir á íslensku tónlistarlífi kynntar á Bransadögum
Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG), Tónlistarmiðstöð og Tónlistarborgin Reykjavík standa fyrir opnum morgunviðburði á Bransadögum þriðjudaginn 3. nóvember. Viðburðurinn ber yfirskriftina Að vita sínu viti um vistkerfi tónlistar á Íslandi og er hluti af fyrirlestraröðinni Samtal um skapandi greinar.
Hvað segja streymistölur og hagtölur okkur um íslenskt tónlistarlíf og hvað segja þær ekki? Hvaða þekkingu þarf til að bæta starfsskilyrði tónlistarfólks og byggja upp öflugt tónlistarlíf?
Þessar spurningar verða í brennidepli á viðburðinum sem haldinn verður í aðdraganda tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves. Þar verður fjallað um hvernig rannsóknir á íslenskum tónlistargeira geta nýst við stefnumótun, fjármögnun og uppbyggingu menningarlegra innviða.
Ný þekking á íslenskum tónlistargeira
Á viðburðinum verða kynntar nýjar rannsóknir á streymi og hlustun, lifandi tónlist og reynslu fólks innan tónlistargeirans.
Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs skapandi greina, kynnir tölfræðigreiningu á íslenskum tónlistariðnaði. R. Michael Hendrix fjallar um lifandi tónlist og tónleikastaði og Þorbjörg Daphne Hall kynnir rýnihóparannsókn á íslensku tónlistarlífi.
Hvernig nýtist þekkingin við stefnumótun?
Að kynningum loknum fara fram pallborðsumræður um hvernig nýta megi rannsóknir og þekkingu til að móta framtíð íslensks tónlistarlífs.
Þátttakendur í pallborðinu eru Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar, og Þorvaldur Davíð Kristjánsson, varaformaður menningarráðs Reykjavíkurborgar.
Chris Murphy, menningarhagfræðingur og ráðgjafi á sviði menningarstefnu, stýrir umræðunum.
Opinn viðburður í Grósku og í streymi
Viðburðurinn fer fram þriðjudaginn 3. nóvember 2026, kl. 8:30–10:00, á 3. hæð í Grósku, hjá Fenris Creations, sem er samstarfsaðili viðburðarins. Einnig verður hægt að fylgjast með í beinu streymi á Facebook.
Viðburðurinn er öllum opinn og þátttaka er ókeypis. Boðið verður upp á léttan morgunverð fyrir þátttakendur í Grósku.
Athugið að viðburðurinn fer fram á ensku.
Nánari upplýsingar:
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta