Ný stjórn Háskólans á Bifröst hefur tekið til starfa
Ný stjórn Háskólans á Bifröst hefur tekið til starfa. Stjórnarformaður er Árni Magnússon, forstjóri Isor og fyrrverandi félagsmálaráðherra. Hann kemur inn í stjórn sem fulltrúi Hollvinasamtakanna og tekur hann við formennsku af Ársæli Harðarsyni.
Stjórn Háskólans á Bifröst er skipuð fimm einstaklingum tilnefndum til tveggja ára í senn. Eftirtaldir aðilar skipa sinn fulltrúa í stjórn háskólans: Borgarbyggð, Háskólaráð Háskólans á Bifröst, Hollvinasamtök Bifrastar, Samband íslenskra samvinnufélaga og Samtök atvinnulífsins. Þrír nýir stjórnarmenn koma inn í stjórn að þessu sinni, en það eru fulltrúar Hollvinasamtakanna, Borgarbyggðar og Háskólaráðs.
Nýja stjórn skipa:
- Árni Magnússon, formaður, fulltrúi Hollvinasamtakanna
- Eyjólfur Árni Rafnsson, varaformaður, fulltrúi Samtaka atvinnulífsins
- Guðveig Lind Eyglóardóttir, fulltrúi Borgarbyggðar
- Unnar Steinn Bjarndal, fulltrúi Háskólaráðs
- Margrét K. Guðnadóttir, fulltrúi SÍS.
Háskólinn á Bifröst býður nýja stjórn háskólans velkomna til starfa.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta