Ný rannsókn sýnir styrka stöðu mannauðsstjórnunar á Íslandi
Ný rannsókn á sviði mannauðsmála, alþjóðlega CRANET rannsóknin sýnir að staða mannauðsmála hefur styrkst í íslenskum fyrirtækjum og stofnunum á undanförnum árum. Mannauðsstjórar eiga í auknum mæli sæti í framkvæmdastjórn og eru nú oftar ráðnir úr hópi sérfræðinga á sviði mannauðsmála. Framfarir hafa orðið í jafnréttismálum og aukin áhersla er lögð á fræðslu og starfsþróun. Á sama tíma standa fyrirtæki frammi fyrir áskorunum sem tengjast meðal annars nýtingu gervigreindar og gagna, áhrifum styttingar vinnuvikunnar og fjölbreytni á vinnumarkaði.
Þetta kemur m.a. fram í nýútkominni skýrslu sem ber heitið Mælikvarðar mannauðs – CRANET rannsóknin 2026. Rannsóknin er hluti af alþjóðlega CRANET-samstarfinu og hefur verið framkvæmd reglulega meðal mannauðsstjóra hér á landi frá árinu 2003. Verkefninu hefur síðast liðin 20 ár verið stýrt hér á landi af Arneyju Einarsdóttur, prófessor við Háskólann á Bifröst og hún situr jafnframt í ráðgjafarráði alþjóðlega verkefnisins. Niðurstöður veita mikilvæga innsýn í stöðu og þróun mannauðsmála á íslenskum vinnumarkaði undanfarna tvo áratugi og eru niðurstöður að þessu sinni settar í alþjóðlegt samhengi með samanburði við þrjú önnur þátttökulönd, Danmörku, Belgíu og Bandaríkin. Einnig eru niðurstöður víða greindar eftir stærð og atvinnugrein.
Staða mannauðsmála á Íslandi góð í alþjóðlegum samanburði
Ein skýrasta niðurstaða rannsóknarinnar er að staða mannauðsstjórnunar innan íslenskra fyrirtækja og stofnana hefur styrkst frá síðustu gagnaöflun árið 2021. Niðurstöður sýna að 76% þeirra sem tóku þátt í rannsókninni hér á landi eru nú með skilgreinda mannauðsdeild, samanborið við 63% árið 2021. Þá eiga 79% mannauðsstjóra sæti í framkvæmdastjórn eða sambærilegu æðsta stjórnunarteymi hjá þeim skipulagsheildum þar sem mannauðsdeild er til staðar og að meðaltali 129 starfsmenn á bak við hvert stöðugildi í mannauðsdeildum. Í ljósi breytileika er þó hér vert að horfa frekar til miðgildisins 100 á hvert stöðugildi í mannauðsdeild.
Í alþjóðlegum samanburði stendur Ísland vel þegar kemur að þátttöku mannauðsstjóra í æðstu stjórnunarteymum. Hlutfallið er hæst í Belgíu en Ísland fylgir þar fast á eftir. Hlutfall mannauðsstjóra sem eiga sæti í framkvæmdastjórn eða sambærilegu stjórnunarteymi er hærra hér á landi en í Bandaríkjunum, þrátt fyrir að þátttökufyrirtækin þar séu mun stærri. Lægst er hlutfallið í Danmörku. Þetta bendir til þess að mannauðsstjórnun hafi öðlast sterka stöðu í íslensku atvinnulífi og að mannauðsstjórar hafi í auknum mæli aðkomu að stefnumótandi ákvörðunum.
Aukin starfsánægja en meiri yfirvinna í kjölfar styttingar vinnuvikunnar
Stytting vinnuvikunnar er orðin útbreidd á íslenskum vinnumarkaði. Í 59% fyrirtækja og stofnana sem tóku þátt njóta að minnsta kosti fjórir af hverjum fimm starfsmönnum styttingarinnar. Útfærsla styttingarinnar er þó mismunandi eftir atvinnugreinum og er hún almennt meiri hjá hinu opinbera en á almennum vinnumarkaði. Niðurstöður benda auk þess til að styttingin hafi haft jákvæð áhrif á starfsánægju, en á sama tíma telja tveir af hverjum fimm þátttakenda að yfirvinnutímum hafi fjölgað á móti styttingunni. En hins vegar telja þeir að framleiðni, starfsmannavelta og veikindafjarvistir hafi haldist óbreytt.
Niðurstöður vekja spurningar um hvernig fyrirtækjum og stofnunum hefur tekist að aðlaga starfsemi sína að styttri vinnutíma og hvort væntur ávinningur sé að skila sér að fullu.
Framfarir í jafnréttismálum en áskoranir í fjölbreytni
Rannsóknin sýnir framfarir í jafnréttismálum og að íslensk fyrirtæki og stofnanir séu í auknum mæli að móta formlegar stefnur um fjölbreytni. Þróunin hefur þó ekki skilað sér með sama hætti í sértækum aðgerðum gagnvart ólíkum hópum starfsfólks. Aðgerðir til að stuðla að jafnrétti og fjölbreytni hér á landi beinast einkum að konum, en síður að öðrum hópum.
Alþjóðlegur samanburður dregur þennan mun skýrt fram. Um þriðjungur íslenskra fyrirtækja og stofnana beitir sértækum aðgerðum til að fjölga konum í ráðningum eða styðja við starfsþróun þeirra, sem er svipað hlutfall og í Danmörku og Belgíu. Hins vegar er mun minna um aðgerðir sem beinast að fötluðu fólki og þjóðernisminnihlutahópum hér á landi en í samanburðarlöndunum. Íslensk fyrirtæki og stofnanir eru á svipuðum stað og þau dönsku hvað varðar aðgerðir gagnvart innflytjendum, en standa þar að baki Belgíu og Bandaríkjunum.
Niðurstöður benda því til þess að þótt fyrirtæki og stofnanir séu í auknum mæli að móta sér stefnu um fjölbreytni þá sé enn verk að vinna við að fylgja henni eftir með markvissum aðgerðum í ráðningum, þjálfun og þróun og framgangi sem ná til fleiri hópa, s.s. eins og innflytjenda, þjóðernisminnihluta og fatlaðs fólks.
Gervigreind og gagnanýting meðal næstu áskorana
Fyrirtæki og stofnanir hér á landi eru í auknum mæli farin að móta sér líka stefnur um fjarvinnu og sjálfbærni. Þá eru þau einnig farin að huga að stefnumótun um stafrænar lausnir og notkun gervigreindar. Á sama tíma sýna niðurstöður að enn eru tækifæri til að nýta tækni og sjálfvirkni betur í mannauðsferlum. Það á meðal annars við um sjálfsafgreiðslulausnir fyrir starfsfólk og stjórnendur er geta dregið úr tíma sem varið er í hefðbundna umsýslu og skapað aukið svigrúm fyrir önnur stefnumótandi þróunarverkefni fyrir mannauðsfólk. Einnig benda niðurstöður til þess að fyrirtæki og stofnanir geti nýtt gögn með markvissari og greinandi hætti, meðal annars til að greina orsakir starfsmannaveltu og veikindafjarvista og spá fyrir um þróun þeirra, sem og á ýmsum öðrum sviðum.
Aukin áhersla á starfsþróun en ekki allir njóta hennar jafnt
Greina má jákvæða þróun í að Íslensk fyrirtæki og stofnanir verja meiri tíma og fjármunum í fræðslu og þjálfun starfsfólks en áður. Sérstaklega á það við um stjórnendur og sérfræðinga.
Þjálfun á vinnustað er mjög útbreidd og nær öll þátttökufyrirtæki og stofnanir bjóða upp á fræðslu á sviði öryggismála, tækni og leiðtogahæfni. Hins vegar sýna niðurstöður að starfsfólk með litla formlega menntun fær almennt minni fræðslu og þjálfun en stjórnendur og sérfræðingar. Þá meta flest fyrirtæki og stofnanir ekki árangur þjálfunar með kerfisbundnum hætti. Þar felast því tækifæri til að tryggja jafnari aðgang starfsfólks að starfsþróun og bæta mat á því hvernig fjárfesting í fræðslu og þjálfun skilar sér.
Yfir tveggja áratuga rannsókn á íslenskum vinnumarkaði
CRANET rannsóknin er hluti af alþjóðlegu samstarfsverkefni um mannauðsstjórnun sem nær til um 50 háskóla í jafnmörgum löndum. Markmið verkefnisins er að byggja upp þekkingu á mannauðsstjórnun og fylgjast með þróun hennar milli landa og yfir lengri tíma.
Gagnaöflun rannsóknarinnar fór fram vorið 2026 og byggjast niðurstöður á svörum forsvarsfólks mannauðsmála hjá 126 íslenskum fyrirtækjum og stofnunum með 70 eða fleiri starfsmenn. Svarhlutfall var 37%.
Höfundar skýrslunnar eru Arney Einarsdóttir, prófessor við Háskólann á Bifröst, Katrín Ólafsdóttir, dósent við Háskólann í Reykjavík og Ásta Bjarnadóttir, skrifstofustjóri starfsþróunar og starfsumhverfis hjá Reykjavíkurborg. Rannsóknin var unnin á vegum viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst með stuðningi fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Mannauðs, félags mannauðsfólks.
Skýrslan veitir mikilvægan samanburðargrunn fyrir íslenskt atvinnulíf og dregur fram bæði þann árangur sem náðst hefur á sviði mannauðsmála og þau verkefni sem fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir á komandi árum.
Hér má nálgast skýrsluna í heild sinni:
Myndir frá morgunfundi sem haldinn var í tilefni af útgáfu nýrrar CRANET skýrslu 2026
Myndasafn
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta