Dæmi um listaverkin sem fólk getur klæðst frá Jónsson & Jensson

Dæmi um listaverkin sem fólk getur klæðst frá Jónsson & Jensson

11. júní 2026

Ný fatalína þar sem þú klæðist listaverkum

Listamaðurinn Magnús Jónsson, sem útskrifaðist með diplómu í Skapandi greinum frá Háskólanum á Bifröst vorið 2025, hefur ásamt Inga Jenssyni sett á laggirnar fyrirtækið Jónsson & Jensson – skapandi vörumerki þar sem íslensk list, sögur, húmor og menningararfur fá nýtt líf á vörum fyrir ferðamenn og heimafólk.

Magnús segir að námið á Bifröst hafi veitt honum ómetanlega innsýn í marga þætti sem varða vöruþróun, rekstur og markaðssetningu. „Við fengum tækifæri til að þróa þessa hugmynd í gegnum verkefnavinnu í náminu mínu í Skapandi greinum á Bifröst undir styrkri handleiðslu Önnu Hildar fagstjóra, Sirrýjar Arnars, Karolínu og frábærra samnemenda sem hjálpuðu okkur að koma þessu á koppinn,“ segir Magnús.

Á vef Jónsson & Jensson lýsa þeir félagar samstarfinu sem skapandi samvinnu sem á rætur í íslenskum menningararfi og er knúin áfram af ímyndunarafli. Annar komi með sögurnar, stemninguna og hugmyndirnar; hinn gefi þeim myndrænt líf með sterkum línum, áferð og karakter. Magnús kemur inn í verkefnið með reynslu sína af leik, kvikmyndagerð, tónlist og myndlist, auk djúprar ástar á íslenskum sögum. Ingi leggur til áratuga reynslu af teikningu og hugmyndavinnu og gefur hverri vöru sinn sérstaka svip, sál og skerpu.

Vefverslun Jónsson & Jensson er nú komin í loftið og eru áhugasöm hvött til að skoða úrvalið og kynna sér þessa nýju fatalínu þar sem hægt er að klæðast listaverkum.