Ný bók um sjávarútveg - Fisheries and Aquaculture: The Food Security of the Future 7. desember 2020

Ný bók um sjávarútveg - Fisheries and Aquaculture: The Food Security of the Future

Fisheries and Aquaculture: The Food Security of the Future er heiti nýútkominnar bókar eftir Ágúst Einarsson og Ástu Dís Óladóttur. Ágúst er prófessor emeritus við Háskólann á Bifröst og var rektor skólans. Hann var einnig prófessor við Háskóla Íslands og alþingismaður. Ásta Dís er dósent við Háskóla Íslands. Í bókinni sem er á ensku er fjallað um þær miklu breytingar sem hafa orðið í sjávarútvegi og hvaða leiðir eru færar í framtíðinni til sjálfbærari og hagkvæmari útgerðar og fiskeldis. Bókin kemur hjá Academic Press, sem er hluti ELSEVIER-forlagsins, sem er eitt stærsta og virtasta útgáfufyrirtæki í heimi.

Bókin byggist á áralöngum rannsóknum Ástu Dísar og Ágústs á umhverfi sjávarútvegs víða um heim. Hún fjallar um sjávarútveg og fiskeldi í alþjóðlegu samhengi í ljósi fæðuöryggis framtíðarinnar. Í bókinni er þessum atvinnugreinum lýst og þær greindar og sýnt er fram á mikilvægi þeirra í hagkerfi þjóða, meðal annars í þróunarlöndunum. Sýndar eru aðferðir, m.a. með tækninýjungum, hvernig bæta má árangur fyrirtækja og landa á þessum sviðum.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands og núverandi formaður Norðurslóða, skrifar inngangsorð að bókinni og dregur þar meðal annars fram hvernig höfundar nýta þekkingu sína á íslenskum sjávarútvegi til að lýsa sjávarútvegi og fiskeldi á heimsvísu á heilsteyptan hátt og vaxandi hlutverki þessara atvinnugreina í fæðuöflun heimsins.

ELSEVIER forlagið gefur árlega út fjölda bóka og tímarita og starfar í fjölda landa. Það er leiðandi á heimsvísu í útgáfu í mörgum vísindagreinum. Það er mikill heiður fyrir íslenskt fræðasamfélag að bók eftir íslenska höfunda skuli vera gefin út fyrir alþjóðlegan markað af þessu virta forlagi.

Bókin er ætluð þeim sem starfa í sjávarútvegi, stefnumótendum í greininni, fræðimönnum, háskólanemum og öllum þeim sem áhuga hafa á þróun sjávarútvegs til framtíðar.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta