Ný bók og ráðstefna um norræna samanburðarrannsókn á áfallastjórnun
Hvernig brugðust Norðurlöndin við COVID-19-faraldrinum og hvaða lærdóm má draga af ólíkum aðferðum þeirra? Þessum spurningum er meðal annars svarað í nýrri bók, Nordic Crisis Management – Well-Performing Governance During COVID-19, sem byggir á þriggja ára norrænu rannsóknarsamstarfi undir forystu Ásthildar Elvu Bernharðsdóttur, prófessors í áfallastjórnun við Háskólann á Bifröst og Baldurs Þórhallssonar, prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Í bókinni er í fyrsta sinn gerður kerfisbundinn samanburður á viðbrögðum Norðurlandanna fimm, auk Grænlands og Færeyja, við COVID-19-faraldrinum. Þótt löndin eigi margt sameiginlegt hvað varðar menningu, stjórnarfar og samfélagsgerð voru aðferðir þeirra við að takast á við faraldurinn að ýmsu leyti ólíkar.
Rannsóknin beindist meðal annars að því hvernig stærð ríkja, skipulag stjórnsýslu, stofnanauppbygging og menning höfðu áhrif á ákvarðanatöku og viðbrögð stjórnvalda. Markmiðið var að auka skilning á því hvað einkennir árangursríka áfallastjórnun og hvernig styrkja megi viðnámsþrótt og samhæfingu Norðurlandanna gagnvart framtíðaráföllum.
Smæð ríkja getur verið styrkleiki í áfallastjórnun
Meðal þess sem fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til er að smæð ríkja þurfi ekki að vera hindrun þegar tekist er á við umfangsmikil áföll á borð við heimsfaraldur. Þvert á móti getur smæð í ákveðnum aðstæðum verið styrkleiki þegar bregðast þarf hratt við flóknum áskorunum og samhæfa aðgerðir stjórnvalda.
Samanburðurinn gefur þannig mikilvæga innsýn í hvernig ólík stjórnsýslukerfi takast á við krísur og hvaða lærdóm megi nýta til að efla viðbúnað og áfallastjórnun til framtíðar.
Áfallastjórnun í rannsóknum og kennslu við Háskólann á Bifröst
Dr. Ásthildur Elva Bernharðsdóttir hefur verið leiðandi í uppbyggingu náms í áfallastjórnun og öryggisfræðum við Háskólann á Bifröst. Hún mótaði og varð fyrsti fagstjóri meistaranáms í áfallastjórnun og tók jafnframt þátt í að þróa BA-nám í öryggisfræði og almannavörnum, þar sem hún var einnig fyrsti fagstjórinn.
Báðar námslínurnar voru þær fyrstu sinnar tegundar hér á landi og hafa notið mikilla vinsælda. Nú stunda samtals yfir 100 nemendur nám á þessum tveimur námslínum. Ásthildur Elva hefur auk þess komið að rannsóknum og kennslu í áfallastjórnun í Svíþjóð, Bandaríkjunum og Japan.
Ráðstefna í Norræna húsinu 28. október
Í tilefni af útgáfu bókarinnar verður haldin opin ráðstefna í Norræna húsinu miðvikudaginn 28. október, kl. 12:00–15:30.
Á ráðstefnunni koma saman fræðimenn frá Norðurlöndunum sem tóku þátt í rannsóknarverkefninu. Þeir munu kynna helstu niðurstöður rannsóknarinnar og fjalla um þann lærdóm sem draga má af ólíkum viðbrögðum ríkjanna við COVID-19-faraldrinum, meðal annars hvað varðar stjórnarhætti, leiðtogahæfni og áfallastjórnun.
Ráðstefnan fer fram á ensku og er öllum opin.
Bókin Nordic Crisis Management – Well-Performing Governance During COVID-19 er gefin út af Palgrave Macmillan og fæst hjá Bóksölu stúdenta.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta