Norðurslóðir, öryggi og Evrópa í brennidepli í Edinborg
Þann 9. maí síðastliðinn flutti Magnús Árni Skjöld Magnússon, prófessor við félagsvísindadeild, erindi á málþingi The Scottish Council on Global Affairs í Edinborg um öryggismál á Norðurslóðum og hlutverk Íslands í því sambandi. Erindið bar titilinn Iceland at the Edge of Europe: Integration, Security and the Return of Geopolitics, en það tengist efni Jean Monnet Chair verkefnisins ISARCEUR, (Staða Íslands í öryggismálum norðurslóða og Evrópu) sem Magnús leiðir.
Í erindinu var sjónum beint að auknu hernaðar- og öryggisvægi Norðurslóða, vaxandi áherslu á samfélagslegt viðnám og hvernig Ísland hefur þróast frá því að reiða sig nær alfarið á varnarsamstarf við Bandaríkin yfir í fjölþættara evrópskt öryggissamstarf. Þá var einnig fjallað um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og hvernig hún tengist breyttu geopólitísku landslagi Evrópu.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta