Nemendum á Bifröst heldur áfram að fjölga 4. september 2015

Nemendum á Bifröst heldur áfram að fjölga

Nemendum í Háskólanum á Bifröst heldur áfram að fjölga, en í haust verða um 630 nemendur við nám í skólanum en síðastliðið haust voru þeir 617.  Fjölgunin er fyrst og fremst meðal nemenda í háskóladeildunum en 500 nemendur eru nú í grunnnámi og meistaranámi á háskólastigi. Nýnemar við skólann eru um 300.  Nemendur hafa ekki verið fleiri um árabil í Háskólanum á Bifröst. Skólinn hóf í haust kennslu í viðskiptalögfræði í fjarnámi sem hefur hlotið mjög góðar viðtökur.  Ennfremur býður skólinn nú upp á þann möguleika á vera í lögfræðinámi með vinnu.

Stór árgangur laganema hefur nú nám í Háskólanum á Bifröst.  Nýr sviðsstjóri lögfræðisviðs er Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og segir hún það mikla og skemmtilega áskorun að vera fyrstur háskóla á Íslandi til að bjóða upp á laganám í fjarnámi. „Háskólinn á Bifröst hefur verið frumkvöðull í kennslu í fjarnámi og nú er komið að því að bjóða upp á fjarnám einnig í lögfræðinni. Þetta nýmæli hefur orðið til þess að nemendum fjölgar mikið sem þýðir að áhuginn og eftirspurnin er sannarlega til staðar. Háskólinn á Bifröst, undir forystu Helgu Kristínar Auðunsdóttur, hlaut nýverið veglegan styrk til að þróa sérstaka námslínu á meistarastigi í fjarnámi í viðskiptalögfræði ásamt Árósaháskóla og University College í Dublin á Írlandi“, segir Þorbjörg jafnframt. „Okkar sérhæfing hefur verið viðskiptalögfræðin og framtíðarsýnin er að byggja á þeim góða grunni.“

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta